Ólafía Þórunn Kristinsdóttir. Mynd/seth@golf.is
Auglýsing

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr GR hefur lokið leik á Tipsport Golf Masters, sem fer fram á Park Pilsen vellinum í Tékklandi. Ólafía lék lokahringinn á 68 höggum eða -3 og samtals lék hún hringina þrjá á -5 (71-69-68). Þetta er besti árangur hennar á sterkustu atvinnumótaröð kvenna í Evrópu og aðeins annað mótið sem hún tekur þátt í. Ólafía var í 23. sæti fyrir lokahringinn en þegar þetta er skrifað er hún í 13. sæti en keppni er ekki lokið.

Eins og áður segir er þetta annað mótið á ferlinum hjá Ólafíu Þórunni á Ladies European Tour. Hún endaði í 106. sæti á +12 á fyrsta mótinu sem fram fór í Marokkó.

Lokastöðuna á mótinu má sjá hér:

Næsta mót á Ladies European Tour fer fram í Aberdeen í Skotlandi dagana 22.-24. júlí og er Ólafía í 24. sæti á biðlista fyrir það mót. Það gæti breyst mikið eftir árangurinn í Tékklandi enda fær hún mikið af stigum á styrkleikalistann með góðum árangri á þessu móti.

 

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ