/

Deildu:

Auglýsing

Kylfingum á Íslandi heldur áfram að fjölga og samkvæmt nýjustu tölum frá 1. júlí s.l. eru um 23,300 kylfingar skráðir sem félagsmenn í golfklúbba landsins.

Þetta er 5% fjölgun frá árinu 2021 og hafa kylfingar aldrei verið fleiri innan raða Golfsambands Íslands. Í fyrra var fjölgunin um 12%.

Mesta fjölgunin er í aldurshópnum 19 ára og yngri. Í aldurshópnum 16-19 ára er 15% aukning og í aldurshópnum 15 ára og yngri er 12% fjölgun. Í elsta aldurshópnum, 80 ára og eldri, er einnig töluverð fjölgun eða sem nemur 12%.

Hlutfall kvenna er svipað og á undanförnum árum eða um 33% en markmið Golfsambandsins er að hlutfall kvenna verði 40%.

Börn og unglingar eru 14% af kylfingum landsins og það setur Ísland í 4. sæti í Evrópu yfir hlutfall 18 ára yngri skráð í golfklúbba.

Golfsambandið er næst fjölmennasta sérsambandið innan raða ÍSÍ en Knattspyrnusamband Íslands er það fjölmennasta með um 30.000 iðkendur.

Árið 1934 var fyrst byrjað að halda utan um fjölda félagsmanna í golfklúbbum á Íslandi. Í fyrstu talningunni voru 132 félagsmenn, árið 1990 voru 3.400 einstaklingar skráðir í golfklúbba landsins. Tíu árum síðar eða árið 2000 hafði þeim fjölgað mikið eða í 8.500. Á næstu 10 árum varð gríðarleg aukning og rétt um 15.800 félagsmenn voru skráðir árið 2010.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ