Fimm íslenskir kylfingar hófu leik í gær á Opna breska áhugamannamótinu sem fram fer í Wales. Mótið á sér langa sögu og er keppt í 121. skipti að þessu sinni og er leikið á tveimur keppnisvöllum, Pyle & Kenfig og Royal Porthcawl.
Á fyrstu tveimur keppnisdögunum er leikinn höggleikur þar sem 283 keppendur leika um 64 laus sæti í holukeppninni
Aðeins stigahæstu kylfingarnir á heimslista áhugamanna komast inn á þetta mót, Sigurvegarinn fær keppnisrétt á Opna breska meistaramótinu á Troon i ár, og á tveimur risamótum á næsta ári, Mastersmótinu og Opna bandaríska meistaramótinu.
Guðmundur Ágúst Kristjánsson úr GR lék á 70 höggum í gær á Pyle vellinum en par vallar er 71. Hann er jafn í 30. sæti á -1, sex höggum á eftir efsta manni.
Gísli Sveinbergsson (GK) er í 169. sæti á +4, Andri Þór Björnsson (GR) er í 222. Sæti á +5, Rúnar Arnórsson (GK) lék á +7 og Haraldur Franklín Magnús (GR) á +9. Í fyrra komust Guðmundur, Gísli og Haraldur Franklín í 32 manna úrslit á þessu móti.
![- Golfsamband Íslands Gísli Sveinbergsson, GK, slær hér af teig á 16. braut á Hlíðavelli. Mynd/seth@golf.is](https://www.golf.is/wp-content/uploads/2020/04/IMG_1835-1024x683.jpg)
![- Golfsamband Íslands Símamótið 2016](https://www.golf.is/wp-content/uploads/2020/04/IMG_2795-1024x683.jpg)
![- Golfsamband Íslands Rúnar Arnórsson, GK.](https://www.golf.is/wp-content/uploads/2020/04/IMG_1846-2-1024x682.jpg)
![- Golfsamband Íslands Haraldur Franklín Magnús.](https://www.golf.is/wp-content/uploads/2020/04/11856460_10205921295289773_2592893449473936727_o-1024x609.jpg)