Auglýsing

Íslenska kvennalandsliðið í golfi skipað leikmönnum 50 ára og eldri lék á Evrópumótinu í liðakeppni á Parador El Saler vellinum á Spáni. Alls tóku 20 lið þátt og endaði Ísland í 15. sæti.

Lið Íslands var þannig skipað: Ásgerður Sverrisdóttir, Ásta Óskarsdóttir, Jóhanna Ríkey Sigurðardóttir, María Málfríður Guðnadóttir, Ragnheiður Sigurðardóttir og Þórdís Geirsdóttir.

Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit:

Á fyrstu tveimur keppnisdögunum var leikinn höggleikur þar sem að fimm bestu skorin töldu en alls voru sex leikmenn í hverju liði. Á þriðja keppnisdegi var liðunum raðað upp í riðla eftir árangri í höggleiknum.

Liðin í átta efstu sætunum kepptu um Evrópumeistaratitilinn í A-riðli, liðin í sætum 9-16 léku í B-riðli og liðin í 17.-20. sæti léku í C-riðli.

Lokastaðan:

1. Spánn
2. Írland
3. Sviss
4. Belgía
5. Þýskaland
6. Frakkland
7. England
8. Ítalía
9. Skotland
10. Svíþjóð
11. Austurríki
12. Finnland
13. Holland
14. Noregur
15. Ísland
16. Tékkland
17. Portúgal
18. Ungverjaland
19. Eistland
20. Slóvenía

4. keppnisdagur :

Ísland lék gegn Tékkum um sæti 15-16 þar sem að Ísland hafði betur, 3-2. Úrslit leikja má sjá hér fyrir neðan.

3. keppnisdagur

Ísland lék gegn Hollendingum í 2. umferð B-riðils. Þar hafði Holland betur 4-1.

Úrslit leikja má sjá hér fyrir neðan.

Ísland mætti liði Svía í 1. umferð um sæti 9-16. Þar hafði Svíþjóð betur 4-1. Úrslit leikja má sjá hér fyrir neðan.

2. keppnisdagur:

Íslenska liðið endaði í 16. sæti eftir höggleikinn á +157 samtals og leikur um sæti 9-16 í B-riðli í holukeppninni.

Ragnheiður Sigurðardóttir, 85 högg (+12)
Þórdís Geirsdóttir, 89 högg (+16)
Ásgerður Sverrisdóttir, 89 högg (+16)
María Málfríður Guðnadóttir, 91 (+18)
Jóhanna Ríkey Sigurðardóttir, 91 högg (+18)
Ásta Óskarsdóttir, 99 högg (+27)

1. keppnisdagur:

Íslenska liðið er í 17. sæti eftir 1. keppnisdaginn á +96 samtals.

Þórdís Geirsdóttir, 81 högg (+8)
Ragnheiður Sigurðardóttir, 85 högg (+12)
María Málfríður Guðnadóttir, 90 högg (+17)
Ásgerður Sverrisdóttir, 94 högg (+21)
Jóhanna Ríkey Sigurðardóttir, 92 högg (+19)
Ásta Óskarsdóttir, 99 högg (+27)

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ