Site icon Golfsamband Íslands

EM karla, Ísland sigraði Austurríki

Íslenska karlalandsliðið sigraði Austurríki með 3,5 vinningum gegn 1,5 í annari umferð holukeppninar á EM í Finnlandi sem var að ljúka rétt í þessu. Ísland mun því mætir Finnum á morgun í leik um að halda sætinu fyrir Evrópumótið á næsta ári í Halmstad Svíþjóð. Liðið sem tapar leikur í annarri deild á næsta ári.

Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR, Bjarki Pétursson, GB og Haraldur Franklín Magnús, GR unnu sína leiki. Gísli Sveinbergsson, GR náði hálfu stigi í símum leik. En Andri Þór Björnsson, GR varð að sætta sig við tap í dag.

Exit mobile version