Egils-Gullmótið 2016 Eimskipsmótaröðin.
Frá vinstri. Haukur Örn Birgisson, forseti GSÍ, Ragnar Már, Andri Þór, Arnór Snær.
Auglýsing
IMG_9458
Andri Þór Björnsson GR slær af 18 teig á lokahringnum í dag Myndsethgolfis

Andri Þór Björnsson úr GR sigraði nokkuð örugglega á Egils-Gullmótinu á Eimskipsmótaröðinni sem lauk í dag á Strandarvelli á Hellu. Andri lék frábært golf þegar mest á reyndi og sigraði með sex högga mun. Andri lék hringina þrjá á 5 höggum undir pari vallar samtals og lokahringinn lék hann á -2. Ragnar Már Garðarsson úr GKG og Arnór Snær Guðmundsson úr Hamri á Dalvík enduð jafnir í 2.-3. sæti á +1 samtals.

Andri gerði fá mistök á hringnum í dag og fékk tvo skolla en hann fékk alls fimm fugla og þar af þrjá á síðustu fimm holunum.

Þetta er fjórði sigur Andra á Eimskipsmótaröðinni en hann sigraði á tveimur fyrstu mótunum í fyrra og hafði fyrir þá sigra landað einum sigri á mótaröð þeirra bestu.

„Ég ætla að byrja á því að þakka Golfklúbbi Reykjavíkur fyrir stuðninginn, þjálfurunum mínum Inga Rúnari Gíslasyni og Arnóri Finnbjörnssyni, þeir eiga mikið í þessu ásamt aðstoðarmanni mínum. Ég vil einnig þakka Golfklúbbnum á Hellu fyrir að standa vel að þessu móti ásamt Golfsambandi Íslands,“ sagði Andri Þór við golf.is á Strandarvelli á Hellu í dag.

Screen Shot 2016-05-22 at 6.15.15 PM

Arnór Snær Guðmundsson, GHD.
Arnór Snær Guðmundsson GHD

 

Ragnar Már Garðarsson, GKG.
Ragnar Már Garðarsson GKG
arnorsnaergudmundssonIMG_9065
Arnór Snær Guðmundsson GHD
arnorsnaergudmundssonIMG_9068
Arnór Snær Guðmundsson GHD
ingvarandriIMG_9098
Ingvar Andri Magnússon GR
Patrekur Nordquist Ragnarsson, GR.
Patrekur Nordquist Ragnarsson GR
Sigurður Arnar Garðarsson, GKG, lék listir sínar á meðan hann beið eftir úrslitum mótsins.
Sigurður Arnar Garðarsson GKG lék listir sínar á meðan hann beið eftir úrslitum mótsins
Sigurður Arnar Garðarsson, lék listir sínar á meðan hann beið eftir úrslitum mótsins.
Sigurður Arnar Garðarsson lék listir sínar á meðan hann beið eftir úrslitum mótsins
Patrekur Nordquist Ragnarsson, GR.
Patrekur Nordquist Ragnarsson GR
Helgi Dan Steinsson, GG.
Helgi Dan Steinsson GG
Sturla Höskuldsson, GA.
Sturla Höskuldsson GA
Henning Darri Þórðarson, GK.
Henning Darri Þórðarson GK

Deildu:

Auglýsing
 
Auglýsing
 

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ