Daníel Ísak Steinarsson, fimmtán ára gamall kylfingur úr GK, stal senunni á fyrsta degi Egils-Gullmótsins á Eimskipsmótaröðinni sem hófst á á Strandarvelli á Hellu í dag. Daníel Ísak lék fyrsta hringinn á fjórum höggum undir pari og er jafn Andra Þór Björnssyni, GK.
Daníel Ísak lék fyrri níu holurnar á 35 höggum en náði svo þremur fuglum á síðustu fjórum holum dagsins og lauk leik á fjórum höggum undir pari. Andri Þór spilaði jafnan og góðan hring í dag, var með sex fugla, meðal annars á átjándu holunni.
Kristján Þór Einarsson, GM, er þriðji á þremur höggum undir pari og þar á eftir koma Ingvar Andri Magnússon, GR, Ragnar Már Garðarsson, GKG og Hlynur Geir Hjartarson, GOS, allir á tveimur höggum undir pari. Ragnar Már fékk tvo fugla á síðustu fjórum holunum, en Hlynur Geir var í fínu formi framan af, þremur höggum undir pari eftir tólf holur. Hann paraði fimm og fékk einn skolla á síðustu sex holunum.
Í kvennaflokki eru Berglind Björnsdóttir, GR, og Ólöf María Einarsdóttir, GM, jafnar á tveimur höggum yfir pari. Berglind lék fyrri níu holurnar á 36 höggum og endurtók leikinn á seinni níu. Ólöf María fékk tvo skramba á fyrri níu en krækti í þrjá fugla á seinni níu og þær enduðu báðar á 72 höggum.
Skammt á eftir þeim koma Þórdís Geirsdóttir, GK, og Ingunn Einarsdóttir, GKG, á 74 höggum og stutt er í næstu kylfinga þar á eftir. Hin fjórtán ára gamla Hulda Clara Gestsdóttir lék fyrri níu holurnar á 36 höggum en fékk svo tvo skramba á seinni níu og féll niður listann.
![- Golfsamband Íslands Berglind Björnsdóttir er efst í kvennaflokki ásamt Ólöfu Maríu Einarsdóttur.](https://www.golf.is/wp-content/uploads/2020/04/berglind_bjornsdottir2016gk-1024x619.jpg)
![- Golfsamband Íslands andri_mar_oskarsson2016gk](https://www.golf.is/wp-content/uploads/2020/04/andri_mar_oskarsson2016gk.jpg)
![- Golfsamband Íslands andri_thor2_bjornsson2016gk](https://www.golf.is/wp-content/uploads/2020/04/andri_thor2_bjornsson2016gk-1024x634.jpg)
![- Golfsamband Íslands hlynur_geir_hjartarson2016gk](https://www.golf.is/wp-content/uploads/2020/04/hlynur_geir_hjartarson2016gk-1024x693.jpg)
![- Golfsamband Íslands karen_gudnadottir2016gk](https://www.golf.is/wp-content/uploads/2020/04/karen_gudnadottir2016gk-1024x656.jpg)
![- Golfsamband Íslands kristjan_thor_olafur_bjorn2016gk](https://www.golf.is/wp-content/uploads/2020/04/kristjan_thor_olafur_bjorn2016gk-1024x602.jpg)
![- Golfsamband Íslands ragnar_mar_Gardarsson2016gk](https://www.golf.is/wp-content/uploads/2020/04/ragnar_mar_Gardarsson2016gk-1024x580.jpg)
![- Golfsamband Íslands saga_traustadottir](https://www.golf.is/wp-content/uploads/2020/04/saga_traustadottir-1024x659.jpg)
![- Golfsamband Íslands sigurthor_jonsson2016gk](https://www.golf.is/wp-content/uploads/2020/04/sigurthor_jonsson2016gk-1024x645.jpg)
![- Golfsamband Íslands egmot_2strond2016](https://www.golf.is/wp-content/uploads/2020/04/egmot_2strond2016-1024x642.jpg)
![- Golfsamband Íslands egmot_1strond2016](https://www.golf.is/wp-content/uploads/2020/04/egmot_1strond2016-1024x667.jpg)