GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Two male golfers mid-swing with a large US Open logo centered between them on a blurred course background.
Dagbjartur og Gunnlaugur leika báðir í lokaúrtökumótinu annað árið í röð
Auglýsing

Dagbjartur Sigurbrandsson, GR, og Gunnlaugur Árni Sveinsson, GKG, hefja í dag leik í lokaúrtökumóti fyrir U.S. Open á The Lakes Golf & Country Club vellinum í Westerville, Ohio.

Green golf hole with flagstick on a well-manicured putting green, water and dense trees in the background, and a tall antenna tower to the left.
Frá vellinum

Lokaúrtökumót U.S. Open er síðasta stigið í átt að þátttöku í einu af fjórum risamótum golfsins. Þar leika kylfingar 36 holur á einum degi, og aðeins þeir efstu tryggja sér sæti á sjálfu U.S. Open mótinu. Tíu úrtökumót fara fram í Bandaríkjunum og Kanada í dag og má þar finna marga kylfinga frá PGA mótaröðinni, aðra atvinnukylfinga sem og fremstu áhugakylfinga heims.

Dagbjartur tryggði sér sæti í lokaúrtökumótinu eftir frábæra spilamennsku í undankeppni í Pittsfield. Þar léku 85 kylfingar um fjögur laus sæti í lokaúrtökumótinu. Dagbjartur endaði jafn í öðru sæti undankeppninnar, en þetta er annað árið í röð sem Íslandsmeistarinn spilar sig inn í lokaúrtökumótið.

Gunnlaugur Árni þurfti ekki að spila í undankeppni, heldur komst hann beint inn í lokaúrtökumótið vegna stöðu sinnar á heimslista áhugakylfinga. Gunnlaugur er í dag sautjándi á heimslistanum, en hann var að ljúka sínu öðru tímabili í bandaríska háskólagolfinu.

Í Westerville, þar sem okkar menn spila, mæta 53 kylfingar til leiks. Þar á meðal eru J.B. Holmes, Aaron Baddeley og Lucas Glover, sem vann U.S. Open árið 2009.

Gunnlaugur hefur leik kl. 08:12 að staðartíma og Dagbjartur kl. 08:36 (12:12 og 12:36 að íslenskum tíma). Það verður spennandi að fylgjast með þeim félögum í dag, við óskum þeim góðs gengis.

Hér má fylgjast með skori mótsins

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ