Aron Snær Júlíusson, GKG, og Eva Kristinsdóttir, GM, stóðu uppi sem sigurvegarar Powerade-móts Golfklúbbs Þorlákshafnar sem lauk í dag. Leiknar voru 54 holur á tveimur keppnisdögum og sáust mörg frábær skor í mótinu.
Smelltu hér fyrir úrslit mótsins
Aron Snær vann sitt þriðja mót í röð eftir frábæran lokakafla í dag. Íslandsmeistarinn fyrrverandi lék hringi sína á 66, 67 og 67 höggum og varð tveimur höggum á undan næstu mönnum. Þegar tvær holur voru eftir var Aron tveimur höggum á eftir Böðvari Braga Pálssyni, sem endaði annar. Aron fékk örn á sautjándu, fugl á átjándu, lék síðustu tvær holurnar þrjá undir pari og sótti fjögur högg á Böðvar á endasprettinum.
Aron hefur nú unnið öll þrjú mót tímabilsins og er með yfirburðastöðu á stigalista mótaraðarinnar.
Böðvar Bragi deildi öðru sætinu með klúbbfélaga sínum í GR, Hákoni Erni Magnússyni á fjórtán höggum undir pari. Hákon fékk nítján fugla í mótinu sem var mest allra kylfinga, en bæði Aron og Böðvar fengu þrjá erni, sem enginn annar lék eftir.


Eva Kristinsdóttir, GM, stóð uppi sem sigurvegari kvennaflokksins, en hún lék hringina þrjá á sex höggum undir pari. Eva var önnur eftir fyrsta hring en stakk af að honum loknum. Hún skilaði inn skorum upp á 73, 68 og 69 högg, og varð fimm höggum á undan öðru sætinu.
Eva fékk sextán fugla í mótinu, en fjórtán þeirra komu á síðustu tveimur hringjunum. Hún tapaði einnig fæstum höggum flokksins.
Eva endaði í þriðja sæti í fyrstu tveimur mótum sumarsins og sækir með þessu sinn fyrsta sigur á tímabilinu.
Andrea Ýr Ásmundsdóttir, GA, endaði önnur á einu höggi undir pari. Hún lék hringi sína á 73, 73 og 69 höggum og náði sínum besta árangri á tímabilinu.
Elsa Maren Steinarsdóttir, GL, og Karen Lind Stefánsdóttir, GKG, deildu þriðja sætinu á pari vallarins.


Frábæru móti lokið, þökkum Golfklúbbi Þorlákshafnar fyrir framkvæmd mótsins. Næsta stopp GSÍ mótaraðarinnar er Íslandsmótið í holukeppni, sem fer fram dagana 19.-21. júní. Sjáumst þar.



