Fyrsti keppnisdagur Íslandsmótsins í golfi 2026 fór fram á Korpúlfsstaðavelli í dag. Dagbjartur Sigurbrandsson og Elsa Maren Steinarsdóttir léku best allra, en bæði sýndu þau frábæra takta.
Dagurinn hófst klukkan 06:30 með formlegri setningu mótsins. Ragnhildur Sigurðardóttir sló fyrsta höggið við það tilefni, en fyrsti ráshópur mótsins lagði af stað klukkan 07:00. Ræst var út fram eftir degi og síðasti ráshópurinn fór af stað klukkan 15:26.
Rigning setti svip sinn á fyrsta keppnisdaginn og þurftu kylfingar á köflum að glíma við erfiðar aðstæður.
Hægt er að fylgjast með skori mótsins hér
Dagbjartur með tveggja högga forystu
Dagbjartur Sigurbrandsson úr Golfklúbbi Reykjavíkur lék besta hring dagsins í karlaflokki. Hann kom í hús á 66 höggum, eða fimm höggum undir pari, og leiðir með tveimur höggum.
Dagbjartur fékk sex fugla, þar af fjóra á fyrstu sjö holunum, og aðeins einn skolla. Hann lék fyrri níu holurnar á 32 höggum og þær síðari á 34.
Klúbbfélagar Dagbjarts, Arnór Tjörvi Þórsson og Tómas Eiríksson Hjaltested, eru jafnir í öðru sæti á þremur höggum undir pari. Tómas endaði hringinn af miklum krafti og fékk þrjá fugla á holum 14-17.
Kristján Karl Guðjónsson, Jóhannes Guðmundsson og Sigurður Bjarki Blumenstein eru næstir á tveimur undir pari. Kristján Karl og Jóhannes léku báðir skollalausa hringi, en Sigurður Bjarki lék síðari níu holurnar á 32 höggum.
Tólf karlar léku undir pari í dag og fimmtán voru á pari eða betur.
Elsa Maren með ótrúlegan endasprett
Elsa Maren Steinarsdóttir úr Golfklúbbnum Leyni er með þriggja högga forystu í kvennaflokki eftir hring upp á 67 högg, fjögur undir pari.
Elsa Maren var tvo yfir pari eftir ellefu holur en lék síðustu sjö holurnar á sex höggum undir pari. Hún fékk fugla á 12., 13., 15., 16., 17. og 18. holu. Alls fékk hún átta fugla á hringnum, mest allra kylfinga á fyrsta keppnisdegi.
Ríkjandi Íslandsmeistarinn Guðrún Brá Björgvinsdóttir er önnur á einu höggi undir pari. Hún fékk sjö fugla á hringnum og er önnur tveggja kvenna sem léku undir pari.
Ragnhildur Kristinsdóttir og Eva Kristinsdóttir deila þriðja sætinu á 73 höggum, tveimur yfir pari. Una Karen Guðmundsdóttir, Pamela Ósk Hjaltadóttir, Perla Sól Sigurbrandsdóttir og Karen Lind Stefánsdóttir koma þar á eftir, allar á þremur yfir pari.

Fjórða og sextánda holan reyndust erfiðar
Tölfræðin sýnir að kylfingar þurftu sérstaklega að hafa fyrir hlutunum á fjórðu og sextándu holu vallarins.
Í karlaflokki var sextánda holan erfiðust og var hún leikin að meðaltali á 0,95 höggum yfir pari. Fjórða holan kom þar á eftir, en sjöunda holan var sú eina sem spilaðist undir pari að meðaltali hjá körlunum.

Fjórða holan reyndist erfiðust í kvennaflokki en hún spilaðist að meðaltali á rúmlega 1,3 höggum yfir pari. Sextánda holan spilaðist á einu höggi yfir pari að meðaltali, en sjötta holan reyndist auðveldust.

Hægt er að nálgast ítarlega tölfræði, innsýn í mótið og allar upplýsingar um mótið á nýrri heimasíðu Íslandsmótsins. Smellið hér




