Icewear bikar GKG á Unglingamótaröðinni fór fram dagana 4.-6. júní 2026 á Leirdalsvelli.
Í mótið mætti 101 kylfingur, 72 í drengjaflokki og 29 í stúlknaflokki.
Bryndís Eva Ágústsdóttir, GA, vann mótið í flokki stúlkna 15-18 ára á fimm höggum yfir pari. Bryndís lék hringi sína á 70, 73 og 75 höggum, leiddi með ellefu fyrir lokahringinn og vann að lokum með tíu höggum.
Frábær spilamennska hjá landsliðskylfingnum sem hefur verið í efstu tveimur sætunum í öllum mótum sumarsins.
Ásdís Rafnar Steingrímsdóttir, GR, varð önnur á fimmtán höggum yfir pari. Ásdís lék hringi sína á 77, 77 og 74 höggum og heldur áfram góðu gengi sínu á mótaröðinni. Hún varð níunda í fyrsta móti sumarsins og vann í Mosfellsbæ um síðustu helgi.
Embla Hrönn Hallsdóttir varð þriðja á nítján höggum yfir pari.
Elva María Jónsdóttir, GK, var verðlaunuð fyrir bestan árangur kylfinga í flokki 15-16 ára annað mótið í röð.
Kristján Karl Guðjónsson, GM, vann sitt annað mót á tímabilinu, en hann lék á einu höggi undir pari. Kristján lék hringi sína á 71, 68 og 73 höggum.
Gunnar Þór Heimisson, GKG, varð annar á pari vallarins. Gunnar var níu höggum á eftir Kristjáni þegar fimm holur voru eftir, en endaði einungis höggi á eftir sigurvegaranum.
Óliver Elí Björnsson, GK, varð þriðji á þremur höggum yfir pari.
Björn Breki Halldórsson, GKG, var verðlaunaður fyrir bestan árangur kylfinga í flokki 15-16 ára.
Við óskum kylfingum til hamingju með árangurinn og þökkum Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar fyrir framkvæmdina á þessu stóra móti.



