Auglýsing

Bjarki Pétursson, GKG, Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GKG og Haraldur Franklín Magnús, GR hafa nú leikið tvo keppnishringi af af alls fjórum á 2. stigi úrtökumótsins fyrir DP Evrópumótaröðina sem fram fer dagana 3.-6. nóvember.

Alls er keppt á fjórum golfvöllum á Spáni á 2. stigi úrtökumótsins og leika Íslendingarnir allir á sama vellinum – Isla Canela Links í Huelva á Spáni.

Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit á Isla Canela Links.

Nánar um úrtökumótin hér:

Bjarki Pétursson er á 11 höggum samtals og er hann í 8. sæti þegar keppni er hálfnuð. Bjarki lék á 68 höggum í dag þar sem hann fékk fjóra fugla og tapaði ekki höggi. Bjarki hefur alls fengið 11 fugla á hringjunum tveimur og ekki tapað höggi sem er frábær árangur. Bjarki er í 8. sæti.

Guðmundur Ágúst fékk sjö fugla í dag og tapaði einu höggi með skolla á 17. brautinni. Hann er á 9 höggum undir pari vallar samtals (69-66). Guðmundur Ágúst hefur fengið alls 13 fugla á hringjunum tveimur en hann er með fjóra skolla á 36 holum. Hann er í 16. sæti.

Haraldur Franklín lék á pari vallar í dag og er hann á 6 höggum undir pari samtals (66-72). Haraldur hefur fengið alls 9 fugla og þrjá skolla. Hann er í 35. sæti.

1 keppnisdagur:

Bjarki lék á 7 höggum undir pari á 1. hringnum eða 65 höggum. Hann fékk sjö fugla og tapaði ekki höggi. Bjarki er í 3.-6. sæti.

Haraldur Franklín fékk einnig sjö fugla líkt og Bjarki en Haraldur Franklín tapaði einu höggi á 2. braut og endaði á -6 eða 66 höggum. Hann er í 7.-12. sæti.

Guðmundur Ágúst fékk alls sex fugla í dag en hann tapaði þremur höggum og lék á -3 samtals eða 69 höggum. Guðmundur Ágúst er í 29.-37. sæti eftir fyrsta hringinn.

Einnig er keppt á Empordia við Girona, Desert Springs við Almeria og Las Colinas við Alicante. Isla Canela völlurinn kom inn sem keppnisvöllur nýverið en til stóð að keppt yrði á Alenda vellinum við Alicante.

Gera má ráð fyrir að um 20 efstu af hverjum velli fyrir sig komist í gegnum 2. stig úrtökumótsins eða um 80 kylfingar alls.

Alls var keppt á níu keppnisstöðum á 1. stigi úrtökumótsins víðsvegar um Evrópu og nú þegar hafa 8 íslenskir kylfingar að reynt sig á úrtökumótum fyrir DP-Evrópumótaröðina. Guðmundur Ágúst og Haraldur Franklín bætast nú við og verða því alls 10 keppendur frá Íslandi á úrtökumótunum á þessu ári – sem er jöfnun á meti sem sett var árið 2019.

Bjarki Pétursson, sem varð Íslandsmeistari í golfi 2020, komst í gegnum 1. stig úrtökumótsins á móti sem fram fór á Haugschlag vellinum í Austurríki. Bjarki lék samtals á 7 höggum undir pari vallar, 281 höggi, (72-70-69-70). Bjarki er að taka þátt á úrtökumótinu fyrir DP Evrópumótaröðina í annað sinn á ferlinum – en hann fór alla leið inn á lokaúrtökumótið, eða 3. stigið, árið 2019. Í kjölfarið fékk hann takmarkaðan keppnisrétt á mótaröðinni á þessu tímabili.

Guðmundur Ágúst, sem varð Íslandsmeistari í golfi árið 2019, þurfti ekki að fara í gegnum 1. stig úrtökumótsins en hann hefur leikið á Áskorendamótaröðinni, Challenge Tour, á þessu tímabili. Þetta er í fimmta sinn sem Guðmundur Ágúst keppir á úrtökumótinu fyrir DP Evrópumótaröðina. Hann féll úr á 2. stiginu árið 2016, og næstu tvö ár á eftir féll hann úr leik á 1. stiginu. Árið 2019 komst Guðmundur Ágúst inn á lokaúrtökumótið. Hann fékk keppnisrétt á Áskorendamótaröðinni með góðum árangri á Nordic Tour atvinnumótaröðinni þar sem hann sigraði á þremur mótum á einu tímabili – sem tryggði honum keppnisrétt á næst sterkustu atvinnumótaröð Evrópu.

Haraldur Franklín, sem varð Íslandsmeistari árið 2012, er í sömu stöðu og Guðmundur – og þarf því ekki að fara í gegnum 1. stig úrtökumótsins. Haraldur Franklín er að keppa í 5. sinn á úrtökumótinu fyrir DP Evrópumótaröðina. Hann hefur alltaf komist í gegnum 1. stig úrtökumótsins en á enn eftir að komast í gegnum 2. stig úrtökumótsins. Haraldur Franklín hefur verið með keppnisrétt á Áskorendamótaröðinni, Challenge Tour, en hann öðlaðist keppnisrétt á þeirri mótaröð með því að vera í einu af 5 efstu sætunum á stigalista Nordic Tour atvinnumótaraðarinnar.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ