Birgir Leifur Hafþórsson.
Auglýsing

Birgir Leifur Hafþórsson, sjöfaldur Íslandsmeistari í golfi, tók risastökk á heimslistanum í golfi sem var uppfærður að venju í upphafi vikunnar.

Birgir Leifur, sem keppir fyrir hönd GKG, fór upp um 448 sæti á heimslistanum eftir sigur hans á Corden Open á Áskorendamótaröðinni s.l. sunnudag.

Birgir Leifur er í 415. sæti heimslistans. Hann hefur aldrei verið ofar á heimslistanum á 20 ára atvinnumannaferli. Hann náði 656. sæti árið 2007 þegar hann var með keppnisrétt á Evrópumótaröðinni.

 

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ