Golfsamband Íslands

Birgir Leifur fer hratt upp stigalistann á Áskorendamótaröðinni

Birgir Leifur Hafþórsson. Mynd/seth@golf.is

Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur úr GKG, náði frábærum árangri á næst sterkustu atvinnumótaröð Evrópu. Birgir Leifur endaði í 11. sæti á níu höggum undir pari samtals. Hann lék hringina fjóra á 279 höggum (71-67-74-67). Mótinu lauk á sunnudaginn en það fór fram í Danmörku.

Lokastaðan:

Með árangri sínum hefur Birgir Leifur farið hratt upp stigalistann á Áskorendamótaröðinni. Hann er í 46. sæti eftir 5 mót á þessu tímabili sem er besta staða hans á þessum lista frá upphafi.

Exit mobile version