/

Deildu:

Auglýsing

Axel Bóasson, GK, Íslandsmeistari í golfi og stigameistari Eimskipsmótaraðarinnar 2018, hóf leik á fimmtudaginn á Áskorendamótaröðinni.

Axel lék á 72 og 76 höggum og endaði hann í 121. sæti og komst ekki í gegnum niðurskurðinn.

Mótaröðin er sú næst sterkasta í Evrópu. Mótið fer fram í Frakklandi og heitir Cordon Golf Open.

Það fer að líða að lokum keppnistímabilsins en aðeins átta mót eru eftir á keppnisdagskrá Áskorendamótaraðarinnar.

Birgir Leifur Hafþórsson á góðar minningar frá þessu móti í fyrra. Hann stóð uppi sem sigurvegari og var það jafnframt fyrsti sigur Birgis Leifs á Áskorendamótaröðinni frá upphafi.

Staðan verður uppfærð hér:

Deildu:

Auglýsing
 
Auglýsing
 

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ