Auglýsing

Þrír keppendur frá Íslandi tóku þátt á Thomas Bjørn Samsø Classic mótinu sem fram fór á Samsø golfvellinum í Danmörku. Axel Bóasson, GK, var hársbreidd frá sigri á mótinu, Bjarki Pétursson, GKG, endaði á meðal 10 efstu og Andri Þór Björnsson, GR, komst í gegnum niðurskurðinn.

Mótið hófst miðvikudaginn 7. júní og lokahringurinn fór fram í dag föstudaginn 9. júní.

Thomas Bjørn Samsø Classic mótið er hluti af Nordic Golf League atvinnumótaröðinni. – sem er í þriðja efsta styrkleikaflokki atvinnumótaraða í Evrópu í karlaflokki.

Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit frá mótinu í Danmörku.

Axel og Sebastian Wiis voru efstir og jafnir eftir 54 holur á -17 samtals. Axel lék hringina þrjá á 69-63-67.

Á lokahringnum var Axel með tveggja högga forskot þegar 9 holur voru eftir en Wiis náði að jafna metin á lokaholunum. Þeir fóru í bráðabana um sigurinn þar sem að Wiis hafði betur.

Bjarki Pétursson lék á -9 samtals (70-69-68) og varð jafn í 10. sæti. Andri Þór Björnsson endaði í 29. sæti á -3 samtals (70-72-71).

Mótaröðin hefur reynst íslenskum kylfingum vel á undanförnum árum og opnað dyr inn á Áskorendamótaröðina (Challenge Tour). Fimm efstu á stigalistanum í lok keppnistímabilsins fá keppnisrétt á Challenge Tour og þrír sigrar á þessu tímabili tryggja einnig keppnisrétt á Challenge Tour.

Íslensku keppendurnir eru Andri Þór Björnsson, GR, Axel Bóasson, GK og Bjarki Pétursson, GKG.

Á stigalistanum fór Axel úr 8. sæti í það 6. en hann hefur leikið á alls tíu mótum á þessu tímabili, Bjarki hefur leikið á átta mótum og er í 28. sæti á stigalistanum, Andri Þór hefur leikið á níu mótum og fór hann upp þrjú sæti eftir þetta mót er í 72. sæti á stigalistanum.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ