Axel Bóasson.
Auglýsing

Alls tóku 9 íslenskir kylfingar þátt á Sand Valley Polish Masters mótinu sem fram fór á Sand Valley vellinum í Póllandi. Mótið er hluti af Nordic Golf League atvinnumótaröðinni – sem er í þriðja efsta styrkleikaflokki atvinnumótaraða í Evrópu í karlaflokki.

Mótið hófst þann 9. apríl og lokahringurinn fór fram í gær. Mótaröðin hefur reynst íslenskum kylfingum vel á undanförnum árum og opnað dyr inn á Áskorendamótaröðina (Challenge Tour). Fimm efstu á stigalistanum í lok keppnistímabilsins fá keppnisrétt á Challenge Tour og þrír sigrar á þessu tímabili tryggja einnig keppnisrétt á Challenge Tour.

Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit frá mótinu í Póllandi.

Axel Bóasson, GK, endaði í þriðja sæti á -10 samtals (70-69-67), Andri Þór Björnsson, GR, endaði í 11. sæti á -6 samtals (68-69-73), Sigurður Arnar Garðarsson, GKG, lék á -5 og endaði í 17. sæti. Sigurður Arnar setti vallarmet á öðrum keppnisdegi þegar hann lék á 65 höggum eða -7. Hann bætti vallarmetið um eitt högg. Bjarki Pétursson, GKG, endaði í 40. sæti á pari vallar samtals (68-75-75).

Hákon Örn Magnússon, GR, Aron Snær Júlíusson, GKG léku á pari vallar á fyrstu tveimur hringjunum og komust ekki í gegnum niðurskurðinn. Daníel Ísak Steinarsson, GK, Ragnar Már Garðarsson, GKG, og Svanberg Addi Stefánsson, GK komust ekki í gegnum niðurskurðinn.

Þetta er í fyrsta sinn sem þessi mótaröð fer fram í Póllandi. Mótið er það fyrsta af alls þremur sem fram fer á þessu svæði næstu daga. Alls eru 152 keppendur og koma þeir frá 11 löndum.

Þann 13. apríl hefst GEBWELL Championship á þessum velli og þar verða leiknar 54 holur. Lokamótið og það þriðja í röðinni hefst mánudaginn 17. apríl en það mót heitir Valley Spring Series Final.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ