Íslandsmót unglinga 2026 í holukeppni fór fram á Selfossi dagana 23.-25. júlí.
Fjórar stúlkur tóku þátt í flokki 12 ára og yngri. Keppni hófst með höggleik þar sem þeim var raðað í sæti fyrir útsláttarkeppnina.
Til úrslita léku Ásta Sigríður Egilsdóttir og Edda María Hjaltadóttir. Ásta Sigríður vann úrslitaleikinn 3/2 og tryggði sér þar með Íslandsmeistaratitilinn í holukeppni 2026.
Ásta Sigríður var önnur eftir höggleikinn. Hún mætti Örnu Dís Hallsdóttur í undanúrslitum og vann leik þeirra 4/3.
Edda María var efst eftir höggleikinn og mætti Thelmu Clausen Halldórsdóttur í undanúrslitum. Edda María hafði betur, 3/2, og tryggði sér sæti í úrslitaleiknum.
Arna Dís varð í þriðja sæti eftir 3/1 sigur gegn Thelmu í leiknum um bronsið.
Verðlaunasæti:
- Ásta Sigríður Egilsdóttir, GO
- Edda María Hjaltadóttir, GKG
- Arna Dís Hallsdóttir, GKG
Hér má sjá rástíma og úrslit allra leikja






