Auglýsing

Tveir íslenskir kylfingar hófu leik á þriðjudag á úrtökumótinu fyrir Evrópumótaröðina í karlaflokki. Aron Snær Júlíusson úr GKG keppti á á Fleesense vellinum í Þýskalandi og Þórður Rafn Gissurarson úr GR keppti á The Roxburghe vellinum í Skotlandi.

Aron Snær gerði sér lítið fyrir og komst örugglega áfram á 2. stigið en hann lék á -6 samtals (69-70-73-70) 282 höggum. Þetta er í fyrsta sinn sem Aron Snær reynir fyrir sér á úrtökumótinu fyrir Evrópumótaröðina. Alls komust 20 efstu áfram á 2. stigið af þessum velli.


Skor keppenda uppfært hér:

Þórður Rafn náði ekki að komast áfram en hann lék hringina fjóra á 293 höggum eða +5 samtals (71-78-71-73). Annar keppnisdagurinn reyndist dýrkeyptur hjá Þórði en hann þeir sem lék á -5 samtals eða betra skori komust í hóp 20 efstu og héldu áfram inn á 2. stigið.


Skor keppenda er uppfært hér: 

Þetta er í fyrsta sinn sem hinn tvítugi Aron Snær leikur á úrtökumótinu en hann hefur leikið vel á undanförnum vikum hér á Íslandi og fagnað sigri á tveimur mótum í röð á Eimskipsmótaröðinni.

Þórður Rafn, sem varð þrítugur nýverið, er að taka þátt í áttunda sinn á úrtökumótinu. Hann hefur leikið á Pro Golf atvinnumótaröðinni undanfarin ár og er í 19. sæti peningalistans þessa stundina. Þórður Rafn varð Íslandsmeistari í golfi árið 2015 og hefur hann tvívegis komist í gegnum 1. stig úrtökumótsins, og það gerði hann árið 2015 og 2016.

Um 700 keppendur taka þátt á 1. stigi úrtökumótsins en keppt er á 8 völlum í haust og komast um 25% af keppendum á hverju velli fyrir sig áfram á 2. stigið.

Það má gera ráð fyrir að alls verði átta íslenskir karlar sem reyni fyrir sér á úrtökumótinu fyrir Evrópumótaröðina i haust. Ólafur Björn Loftsson (GKG), Guðmundur Ágúst Kristjánsson (GR), og Andri Þór Björnsson (GR) hefja leik á 1. stiginu síðar í haust. Axel Bóasson (GK) og Haraldur Franklín Magnús (GR) eru í harðri baráttu um að komast í hóp 5 efstu á stigalista Nordic Tour atvinnumótaraðarinnar sem tryggir sæti á Áskorendamótaröðinni á næsta tímabili. Þeir verða báðir á meðal keppenda á úrtökumótinu og fara þeir beint inn á 2. stig úrtökumótsins.

Birgir Leifur Hafþórsson úr GKG er í góðri stöðu að tryggja sér keppnisrétt á Evrópumótaröðina. Hann er í 16. sæti peningalistans á Áskorendamótaröðinni en 15 efstu sætin tryggja keppnisrétt á Evrópumótaröðina. Ef það tekst ekki fer Birgir Leifur beint inn á 2. eða lokastig Evrópumótaraðarinnar.

 

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ