Sunnudaginn 20. mars fer fram kynningarfundur á vegum ANSAathletics þar sem að möguleikar á golfiðkun samhliða háskólanámi í Bandaríkjunum verða kynntir.
Fundurinn fer fram í salarkynnum Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar og hefst fundurinn kl. 17.00.
Viðburðinn er opinn öllum og gjaldfrjáls aðgangur.
Í tilkynningu frá ANSAathletics eru ungir kylfingar, drengir og stúlkur á aldrinum 14 – 19 ára hvattir til að mæta með foreldrum til að sjá þessa áhugaverðu kynningu og umræður að henni lokinni.
![image001 - Golfsamband Íslands](https://www.golf.is/wp-content/uploads/2022/03/image001-1024x1024.png)