Andri Þór Björnsson úr GR með tveggja högga forskot fyrir lokahringinn á Símamótinu á Eimskipsmótaröðinni í golfi sem fram fer á Hlíðavelli í Mosfellsbæ í dag. Andri Þór hefur leikið frábært golf og er hann á -10 eftir 36 holur. Hann setti vallarmet á fyrsta hringnum þar sem hann lék á 64 höggum eða -8 en í dag lék hann á 70 höggum eða -2.
Magnús Lárusson úr GJÓ er á -8 samtals en hann lék á -2 í dag eða 70 höggum eftir að hafa verið á 66 höggum í gær. Theodór Emil Karlsson úr GM er þriðji á -6.
Skor keppenda á Símamótinu er með eindæmum gott en 12 kylfingar eru undir pari eftir 36 holur.
![- Golfsamband Íslands Magnús Lárusson, GJÓ, slær hér á 1. teig á Hlíðavelli í dag. Mynd/seth@golf.is](https://www.golf.is/wp-content/uploads/2020/04/IMG_2616-1024x683.jpg)
![- Golfsamband Íslands Theodór Emil Karlsson; GM, slær hér á 1. teig á Hlíðavelli í dag. Mynd/seth@golf.is](https://www.golf.is/wp-content/uploads/2020/04/IMG_2566.jpg)