Úlfar Jónsson, landsliðsþjálfari, hefur valið þrjá kylfinga sem taka þátt á HM áhugamanna fyrir Íslands hönd. Mótið fer fram í Mexíkó en þar er keppt um Eisenhower verðlaunagripinn.
Andri Þór Björnsson, Guðmundur Ágúst Kristjánsson og Haraldur Franklín Magnús verða fulltrúar Íslands á þessu móti en þeir eru allir úr Golfklúbbi Reykjavíkur.
Heimsmeistaramótið fer fram dagana 21.-24. september n.k.
![- Golfsamband Íslands Símamótið 2016](https://www.golf.is/wp-content/uploads/2020/04/IMG_3266-1024x683.jpg)
![- Golfsamband Íslands Guðmundur Ágúst Kristjánsson. Mynd/seth@golf.is](https://www.golf.is/wp-content/uploads/2020/04/IMG_1120.jpg)
![- Golfsamband Íslands Haraldur Franklín Magnús.](https://www.golf.is/wp-content/uploads/2020/04/11856460_10205921295289773_2592893449473936727_o-1024x609.jpg)