Lokamót LET Access mótaraðarinnar fer fram á Gambito Golf Calatayud vellinum á Spáni dagana 16.-18. október. Í mótið mæta efstu kylfingar tímabilsins og er til mikils að vinna. Efstu sjö kylfingar stigalistans í lok tímabils vinna sér inn fullan þátttökurétt á LET (Evrópumótaröðinni) á næsta tímabili.
Atvinnukylfingarnir Ragnhildur Kristinsdóttir (Ragga) og Andrea Bergsdóttir hafa báðar leikið frábært golf í sumar og eru á meðal keppenda mótsins. Ragga situr í sjötta sæti stigalistans fyrir lokamótið og Andrea í því tólfta. Staðan er því þannig að Ragga þarf ágætis árangur í mótinu til að vera örugg í efstu sjö á meðan Andrea þarf að vinna mótið.
Fyrsti hringur
Eftir fyrsta hring mótsins er Ragga jöfn í 28. sæti. Hún byrjaði hringinn af gífurlegum krafti og fékk fjóra fugla á fyrstu átta holunum. Eftir skolla á níundu fékk hún frábæran örn á þeirri tíundu, komst fimm undir par og var jöfn í efsta sæti. Fjórir skollar á síðustu sjö holunum skiluðu henni lokaskori upp á 71 högg, einu höggi undir pari vallarins.

Andrea fékk fjóra fugla og fjóra skolla og lék á 72 höggum. Hún er jöfn í 35. sætinu á pari vallarins.

Hér má fylgjast með skori mótsins
Í aðdraganda mótsins fengum við þær báðar í viðtal, en þau má finna hér að neðan.

