Aðalfundur SÍGÍ 2021
Auglýsing

Samtök íþrótta- og golfvallastarfsmanna á Íslandi boða til aðalfundar 2021 sem fram fer fimmtudaginn 10. febrúar 2022 kl. 15.00 í húsakynnum Golfklúbbs Mosfellsbæjar.

Samtök íþrótta og golfvallastarfsmanna á Íslandi eru samtök sem stuðla að fagmennsku hjá félagsmönnum sínum og sér þeim fyrir sem bestum upplýsingum til að auðvelda þeim starf sitt á golf- og íþróttavöllum á Íslandi.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá SÍGÍ.

Málefni fundarins:

1.       Venjuleg aðalfundarstörf.

2.       Stjórn leggur fram meðlimalista sem tilgreini kjörgengi og kosningarétt.

3.       Dagskrá aðalfundarins lögð fram.

4.       Kosning fundarstjóra og fundarritara.

5.       Skýrsla stjórnar lögð fram.

6.       Lagðir fram endurskoðaðir reikningar.

7.       Umræða um skýrslu stjórnar og reikninga.  Reikningar bornir undir atkvæði.

8.       Lagðar fram tillögur um breytingu laga og reglugerða og þær bornar undir atkvæði.

9.       Stjórn leggur fram tillögu um árgjöld og þær bornar undir atkvæði.

10.     Kosning stjórnar og varamanna í stjórn skv. 7. gr.

12.     Kosning tveggja endurskoðenda skv. 7. gr.

13.     Önnur mál

Mikilvægt er að sem flestir mæti og sýni stuðning sinn við félagið í verki.

Um SÍGÍ:

Þeir félagsmenn sem hafa áhuga já eða vita af áhuga annara á stjórnarsetu eru beðnir um hafa samband við formann SÍGÍ sem fyrst.

Samtök íþrótta og golfvallastarfsmanna á Íslandi eru samtök sem stuðla að fagmennsku hjá félagsmönnum sínum og sér þeim fyrir sem bestum upplýsingum til að auðvelda þeim starf sitt á golf- og íþróttavöllum á Íslandi.

Markmið SÍGÍ eru að viðhalda og bæta gæði golf- og íþróttavalla hérlendis.

SÍGÍ mun standa fyrir fræðslufundum, sýningum, golfmótum og heimsóknum jafnt hérlendis sem erlendis.

Menntun og fagmennska er höfð í hávegi hjá samtökunum og áhersla er á miðlun upplýsinga milli félagsmanna. SÍGÍ mun aðstoða félagsmenn til að sækja og nálgast nám í þeirra fagi og er í boði jafnt hérlendis sem erlendis.

Samtökin kappkosta að halda úti vefsíðu með upplýsingum SÍGÍ og vistunar á aðsendu efni sem nýtist félagsmönnum og verður aðgengilegt á læstum hluta vefsíðunnar.

SÍGÍ munu standa fyrir sýningu á vélum og vörum til viðhalds á golfog íþróttavöllum annað hvert ár í þriðju viku október. Aðildarfélögum verður boðin þátttaka í sýningum eftir stöðu þeirra innan samtakanna. Sýningin er opin fyrir hinn almenna félaga innan samtakanna án endurgjalds.

SÍGÍ leitast við að styrkja og efla samband sitt við önnur samtök erlendis taka þátt í fundum og ráðstefnum sem haldin eru af þeim og standa fyrir hópferðum félagsmanna á sýningar erlendis.

Umhverfis sjónarmið skulu ávallt vera í heiðri höfð hjá samtökunum. Stjórn SÍGÍ mun fylgjast með og upplýsa félagsmenn um umhverfisvitund og góða umgengni um náttúruna. Samtökin hlutast til og taka þátt í rannsóknum og tilraunum sem gerðar eru á golf- og íþróttavöllum hérlendis.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ