Kristján Þór Einarsson úr Golfklúbbu Mosfellbæjar, var í gær kjörinn íþróttamaður Mosfellsbæjar. Kristján varð Íslandsmeistari í holukeppni og hann sigraði á þremur af alls sjö stigamótum Eimskipsmótaraðar Golfsambands Íslands. Hann varð efstur á stigalista Eimskipsmótaraðarinnar og er því stigameistari ársins 2014. Þar að auki fékk hann Júlíusarbikarinn sem veittur er þeim sem er með lægsta meðalskorið á Eimskipsmótaröðinni. Kristján var með meðalhöggafjölda upp á 71,37 högg.
Deildu:
Formannafundi GSÍ 2026 lokið
08.11.2026
Fréttir
Nýr landsliðshópur GSÍ valinn
06.11.2026
Fréttir
Formannafundur GSÍ haldinn á Akureyri
03.11.2026
Fréttir


