LEK – Landssamtök eldri kylfinga standa fyrir mótaröð í hermum fyrir eldri kylfinga í vetur.
Mótaröðin stendur yfir frá 29. nóvember 2026 til 6. mars 2027 og er aðgengileg í öllum Trackman hermum á Íslandi.
Keppt verður á fimm golfvöllum, bæði íslenskum og erlendum. Markmiðið er að hvetja eldri kylfinga til að stunda golf yfir vetrartímann og skapa skemmtilegan vettvang til keppni og samveru.
Hvert mót er opið í tvær vikur og geta þátttakendur spilað hvenær sem er innan þess tímabils.
Vellir og dagsetningar
| Mót | Golfvöllur | Tímabil |
| 1 | Reykjavík Korpa – Sjórinn/Áin | 29. nóv. – 12. des. 2026 |
| 2 | Yellowstone Club | 10.–23. jan. 2027 |
| 3 | Casa de Campo – Teeth of the Dog | 24. jan. – 6. feb. 2027 |
| 4 | Cabot Cliffs | 7.–20. feb. 2027 |
| 5 | Golfklúbburinn Keilir | 21. feb. – 6. mars 2027 |
Þátttökuskilyrði
Mótaröðin er ætluð eldri kylfingum, 50 ára og eldri, sem eru félagar í golfklúbbi.
Keppt er í þremur flokkum:
- Karlar 50–69 ára
- Karlar 70 ára og eldri
- Konur 50 ára og eldri
Þátttakendur þurfa að hafa Trackman-aðgang og gilda Trackman-forgjöf sem byggist á að minnsta kosti þremur gildum forgjafarhringjum í Trackman.
Keppnisfyrirkomulag
– Keppt er í 18 holu punktakeppni (Stableford) með Trackman-forgjöf.
– Spila má hvern völl 3 sinnum og gildir besta skor.
– Keppendur fá stig eftir sæti í hverju móti samkvæmt Order of Merit-stigakerfi Trackman.
– Fjögur bestu mótin af fimm telja til heildarúrslita í stigakeppninni.
– Keppendur spila á teigum miðað við þann flokk sem þeir eru í:
- Karlar 50+: teigar í kringum 5600 m.
- Karlar 70+: teigar í kringum 5200 m.
- Konur: teigar í kringum 4700 m.
Í hverju móti er einnig keppt um næst holu (Nearest to the Pin).
Verðlaun
Verðlaun verða veitt fyrir 1., 2. og 3. sæti á stigakeppni mótaraðarinnar í öllum flokkum. Einnig eru veitt verðlaun fyrir 1. sæti í hverju móti og næst holu.
Hvernig tek ég þátt?
1. Skráðu þig í GolfBox
Skráning í mótaröðina fer fram í Golfbox: Skráning hér
2. Skráðu þig í mótið í Trackman
Þegar skráningu í GolfBox er lokið færðu staðfestingu á skjáinn og tengil sem þú þarft að smella á til að skrá þig í mótið í Trackman.
- Smelltu á tengilinn fyrir mótið.
- Skráðu þig inn á Trackman-aðganginn þinn.
- Samþykktu boðið um þátttöku í mótinu.
3. Gakktu úr skugga um að þú sért með réttan aldur skráðan í Trackman og gilda Trackman-forgjöf
Ef þú ert ekki þegar með Trackman-forgjöf þarftu að ljúka að minnsta kosti þremur gildum forgjafarhringjum í Trackman áður en þú getur spilað í mótinu.
Athugið að Trackman-forgjöf er ekki það sama og hefðbundin forgjöf í GolfBox.
4. Bókaðu tíma í golfhermi
Bókaðu tíma í Trackman-hermi.
5. Spila í mótaröðinni
- Skráðu þig inn í Trackman.
- Veldu LEK-mótaröðina undir Tournaments.
- Byrjaðu hringinn.
Mikilvægt er að nota sama Trackman-aðgang í öllum mótunum.
Úrslit og staða í mótaröðinni
Hægt verður að fylgjast með úrslitum einstakra móta, aukakeppnum og stöðu í heildarstigakeppninni í Trackman á meðan mótaröðin stendur yfir.
LEK hvetur eldri kylfinga um allt land til að taka þátt og halda sér í golfformi yfir veturinn 🙂
Taktu þátt – höldum golfinu gangandi allan ársins hring!
Sendið póst á lek@golf.is ef spurningar vakna.
Hér að neðan má nálgast keppnisskilmála mótsins:


