Dagbjartur Sigurbrandsson átti öflugan annan hring á Road to Europe Final by Sparekassen Danmark, lokamóti Nordic Golf League, þar sem hann lék á 66 höggum, fimm höggum undir pari. Hann er jafn í áttunda sæti fyrir lokahringinn í Álaborg í Danmörku. Hlynur Bergsson er í 18. sæti á einu höggi yfir pari.
Dagbjartur lék fyrsta hringinn á 74 höggum, þremur höggum yfir pari, en bætti sig um átta högg á öðrum keppnisdegi.
Hlynur byrjaði mótið vel og var jafn í sjötta sæti eftir fyrsta hring á 70 höggum, einu höggi undir pari. Hann lék annan hringinn á 73 höggum og er á einu höggi yfir pari í heildina.
Fimmtíu efstu kylfingar Nordic Golf League stigalistans eru á meðal keppenda mótsins.
Dagbjartur var í 23. sæti stigalistans fyrir mótið og Hlynur í 29. sæti. Fimm efstu kylfingar listans í lok tímabilsins öðlast keppnisrétt á HotelPlanner mótaröðinni á næsta ári, en stigamunurinn fyrir lokamótið var of mikill til þess að íslensku kylfingarnir gætu náð inn í þann hóp.
Dagbjartur á þó enn möguleika á að vinna sér keppnisrétt í gegnum úrtökumót DP World Tour. Hann komst áfram á annað stig úrtökumótanna í september og leikur á Spáni dagana 29. október til 1. nóvember. Sigurður Arnar Garðarsson og Ragnar Már Garðarsson verða þar einnig á meðal keppenda.



