Haukur Óskarsson, framkvæmdastjóri Nesklúbbsins, náði því ótrúlega afreki í haust að leika alla golfvelli innan Golfsambands Íslands á sama árinu. Fyrsti hringurinn var leikinn í Þorlákshöfn 21. apríl og sá síðasti í Vestmannaeyjum 5. október. Á ferðalaginu lék Haukur 67 golfvelli, 765 ólíkar golfholur, sló 3.343 högg og gekk rúmlega 405 kílómetra.
Hugmyndin hafði blundað í Hauki í að minnsta kosti áratug áður en hann lét verða af henni. Eiginkona hans, Hulda Bjarnadóttir, forseti GSÍ, tók þátt í verkefninu með honum og lék 60 velli á tímabilinu. Ferðirnar voru að mestu skipulagðar í kringum vinnu og aðrar skuldbindingar, með kvöldhringjum, helgarferðum og einstaka hring fyrir vinnu.
Í viðtali við golf.is segir Haukur frá undirbúningnum, áskorunum og kynnum af golfvöllum landsins og fólkinu sem heldur þeim úti. Hann lýsir jafnframt því hvernig áherslan færðist frá skorinu yfir á upplifunina sjálfa.
Hvernig kviknaði hugmyndin að því að leika alla golfvelli innan GSÍ á einu tímabili og hvernig hófst undirbúningurinn?
Ég er nú alveg búinn að ganga með þetta í maganum í örugglega 10 ár eða meira. Þegar maður sá í fréttum eða viðtölum að fólk væri búið að spila alla velli á landinu í gegnum tíðina sem eitt og sér er frábært takmark að þá man ég að ég hugsaði með mér hvað það væri frábært að prófa að spila þá alla „en að gera það á einu tímabili – ætli það sé hægt?“
Ég byrjaði um páskana að stilla þessu upp, hvaða velli væri hægt að keyra á fram og til baka, hvar þyrfti að gista og áður en ég vissi af var Excel-skjalið orðið ansi stórt og litríkt enda að mörgu að huga. Til þess að setja einhvern ramma utan um þetta að þá ákvað ég að þetta yrðu allir vellir sem væru skráðir innan GSÍ og með vallarmat, þ.e. að hægt sé að leika til forgjafar á þeim. Maður hefur alveg heyrt af öðrum völlum en ég ætlaði ekki að fara að svekkja mig á því síðar meir að hafa ekki spilað einhvern völl af því að ég vissi ekki af honum. Samtals eru þetta 67 golfvellir, þar af 19 átján holu vellir og því 765 ólíkar golfholur, jafn misjafnar og þær eru margar. Hulda, konan mín, var til í þetta með mér og við hófum leik í Þorlákshöfn 21. apríl. Ég man þegar við keyrðum heim eftir þann hring að þá sagði ég „jæja, það eru bara 66 eftir“. Síðasti hringurinn var svo tekinn í Vestmannaeyjum 5. október. Allar holur á sumarflötum, öll pútt kláruð og haldið utan um ýmislegt eins og öll skor sem voru ansi misjöfn satt að segja.
Hversu umfangsmikið reyndist verkefnið og hvernig tókst ykkur að samræma það vinnu og öðrum skuldbindingum?
Þetta tók nú ansi marga daga á endanum og var í rauninni miklu stærra verkefni en okkur óraði fyrir. Ég á eftir að reikna út endanlegan mínútufjölda, en upplýsingarnar eru allar til í úrinu. Þetta eru hátt í 200 klukkustundir, held ég. Við erum náttúrulega bæði að vinna og ég í raun í þannig starfi að sumrin eru meira og minna undirlögð í vinnu og fyrir utan sína vinnu er Hulda, konan mín, líka forseti GSÍ og hefur þar ansi mörgum skyldum að gegna og ekki síst yfir sumartímann náttúrulega. Við nýttum því kvöldin í maí og júní vel þegar birtan var sem mest, fórum í „golfferðir“ á fríhelgum þangað sem lengst var að fara og svo stundum rifum við okkur bara upp eldsnemma og kláruðum 9 holur að morgni fyrir vinnu. Á endanum voru þetta ekki nema 4 sumarfrísdagar hjá okkur, allt annað var spilað í kringum vinnuna, önnur golfmót sem við tókum þátt í og aðra viðburði ótengda golfi, sem reyndar voru nú ekki margir eðli málsins samkvæmt.
Hvað stendur helst upp úr ferðunum um landið og hvernig gekk að skipuleggja þær?
Golfferðirnar í aðra landshluta þar sem við gistum eru nú sennilega það sem stendur upp úr þessu öllu saman. Þá þurfti virkilega að leggjast yfir Excel-skjalið og skipuleggja ferðirnar vel – vinna með Google Maps til að sjá hvað maður er lengi að keyra frá A til B, sjá hvort að það væru lausir rástímar, áætla tímann sem tekur að spila völlinn til að geta lagt af stað á næsta völl til að ná rástímanum þar og svo koll af kolli því stundum voru þetta þrír og jafnvel fjórir vellir á dag. Svo var maður kannski búinn að spotta rástímann sem gæti gengið en þegar loks opnaði fyrir skráningu að þá var einhver annar búinn að bóka sig og þá var allt planið farið upp í loft og við þurftum að endurraða eða fara síðar. Eins reyndum við að komast hjá því að vera að skipuleggja þriggja daga ferð til að spila 10 golfvelli í roki og rigningu. Og það fyndna við það, eftir á að hyggja, er að það voru ekki nema tvær holur af öllum 765 þar sem dropaði eitthvað á okkur að einhverju viti og það var núna í lok september.

Hvaða upplýsingum og tölfræði hélduð þið til haga á ferðalaginu?
Já, við til dæmis mældum hvað við gengum langt á hverjum velli og samtals voru þetta tæplega 405,7 kílómetrar sem ég gekk. Höggafjöldinn hjá mér var 3.343 högg og svo á ég eftir að leika mér að ýmiss konar tölfræði, eins og höggum á holu, fjölda par 3, 4 og 5 hola og fleira sem hægt er að taka út úr þessu til gamans. Ég á þetta allt til. Svo var þetta nú ansi margt fest á filmu þar sem konan mín á nú mestan heiður af því og hver veit nema það komi ekki eitthvað skemmtilegt út úr því einhvern tímann síðar?
Hverjar voru helstu áskoranirnar, fyrir utan skipulagið, og breyttist nálgun þín á golfið eftir því sem leið á verkefnið?
Þær voru alveg margar og sumar ófyrirséðar. Ég byrjaði ungur í golfi, var mikið að keppa og mitt golf er bara höggleikskeppni við sjálfan mig og aðra. Ég þurfti snemma að sætta mig við það að það var ekkert raunhæft að ná að skora alla velli vel. Það kom alveg fyrir oftar en einu sinni að ég átti fínt upphafshögg, nema svo kannski birtist allt í einu einhver skurður á miðri braut sem maður vissi ekki af og fyrir vikið kallaði það á víti. Svo ætlaði maður að reyna að sækja það til baka á næstu holu og þá var kannski bara tjörn sem maður sá ekki fyrir og gott skor á þeim hring þar af leiðandi kannski bara farið. Þetta gat í upphafi alveg verið pirrandi en svo breyttist hugafarið meðvitað og þetta snerist náttúrulega mestmegnis um það að reyna að njóta þess sem maður var að upplifa frekar en að ná góðum skorum. Svo þurfti ég að sætta mig við það að tapa í fyrsta skipti fyrir Huldu í höggleik án forgjafar á Hagavelli á Seyðisfirði. Það var eitthvað sem í mínum huga átti aldrei að gerast en hún spilaði frábærlega og vann verðskuldað en engu að síður var erfitt að kyngja því.
Eru einhverjir vellir eða einstakar holur þér sérstaklega eftirminnileg og hvað vakti helst athygli þína á völlunum um landið?
Já, já, en það er bæði útilokað og ósanngjarnt að ætla að bera þá eitthvað saman. Auðvitað voru margar holur sem mætti kalla skrítnar golfholur út frá einhverjum fræðum. Hins vegar ákvað ég snemma að horfa á þetta þeim augum að það væru allir með eitthvað takmarkað landsvæði í boði og þar þyrfti að koma fyrir 9-18 holu golfvelli. Hvernig það er oft á tíðum gert er algjörlega stórkostlegt þó það væri líklega ekki endilega það sem sérfræðingarnir myndu teikna upp. Og til að nefna einhverjar skemmtilegar holur sem stóðu upp úr að þá er 7. holan á Þingeyri til dæmis stórkostleg golfhola enda var maður búinn að heyra af henni í mörg ár. Par 6 holan í Vík sem er sú eina sinnar tegundar á landinu, 8. holan á Egilsstöðum sem er teiknuð inn í klettana og margar fleiri. Golfvöllurinn á Vopnafirði er líka með mikla sérstöðu og nýji völlurinn á Rifi sem er mikið einstaklingsframtak er ofsalega flottur og skemmtilegur völlur. Og miklu meira sem ég gæti talið upp, allir fallegu golfskálarnir náttúrulega, sumir bara búnir gestabók og sjálfsafgreiðsluposa til að greiða vallargjaldið. Þá má líka nefna völlinn á Skagaströnd þar sem maður gengur yfir þjóðveginn til að komast frá einni flötinni yfir á næsta teig. Á heildina litið finnst mér bara aðdáunarvert hvað það eru margir golfvellir til á þessu landi. Ég veit alveg hvað þarf til að búa til og halda úti golfvelli og fyrir klúbba sem eru kannski með mjög fáa meðlimi og þar af leiðandi takmarkaðara fjármagn að þá er þetta ekkert nema hugsjón sem knýr fólk áfram og það er ofsalega aðdáunarvert.

Hvað veitti þér mesta ánægju á ferðalaginu?
Það er úr ansi mörgu að velja. Við vorum til dæmis ansi dugleg að skrá okkur á rástíma bara með fólki sem við þekktum ekki fyrir. Að spila með heimafólki og heyra sögur þeirra af vellinum og klúbbnum þeirra og á heildina litið hvað allir voru stoltir af sínu var mjög skemmtilegt og gaman. Enda mega og eiga allir að vera stoltir af sínu því á endanum snýst þetta um að geta spilað golf í ólíkri náttúru, góðan göngutúr, samveru og svo náttúrulega þessa endalausu baráttu við að hafa stjórn á golfboltanum sem heppnast misvel. Upp úr stendur alltaf náttúran og samveran þó það sé vissulega örlítið skemmtilegra líka þegar það gengur vel. Ég hef að minnsta kosti aldrei týnt jafn mörgum golfboltum – eins gott að ég fór nú ekki að halda utan um það líka. Stundum buðum við vinum með okkur og svo spiluðu krakkarnir okkar með okkur nokkra velli sem gerir þetta enn skemmtilegra. Við sögðum aldrei neinum að þetta væri partur af þessu prógrammi hjá okkur. Í raun eru sennilega flestir sem vita ekki einu sinni af því enn, nema þeir þá kannski sjái það hér. Og vonandi eru þá líka einhverjir sem skilja núna af hverju við þurftum alltaf að drífa okkur hingað og þangað út um allt land að spila golf.
Komu upp einhver óvænt eða eftirminnileg atvik á hringjunum?
Það er kannski eitt sem ég verð að uppljóstra þrátt fyrir að það sé alls ekki til fyrirmyndar. En á einum ónefndum velli í vor var opið inn á allar sumarflatir nema eina. Það var samt hola á flötinni sem var greinilega síðan í fyrra og þar sem þetta snerist um að spila alla velli á sumarflatir að þá endaði ég með að pútta boltanum inn á sumarflötina svo það kæmi ekki boltafar og kláraði svo ofan í þá holu á meðan enginn sá til. Ég dauðskammaðist mín en ég bara varð. Svo kom það upp á Sauðárkróki að ég fór næstum því holu í höggi. Minnir að það sé fjórða braut þar sem boltinn krækti í holuna og endaði eitthvað fet á bak við hana. Sem betur fer gerðist það nú samt ekki því ég var bara einn að spila og það hefði því ekki verið tekið gilt.
Hvernig var tilfinningin þegar þú laukst síðasta hringnum og markmiðinu var náð?
Hún var mjög skemmtileg því það var alveg í tví- eða þrígang þar sem við vorum að bugast á þessu og sáum ekki fram úr hvernig þetta ætti að ganga upp. Það varð ljóst fyrir nokkrum vikum að Hulda myndi því miður ekki ná að klára alla vellina með mér. Hins vegar spilaði hún 60 af völlum landsins í sumar og er þá núna búin að spila alla velli á landinu og eins og áður sagði er það eitt og sér frábært. En ég fór með vini mínum til Eyja síðasta mánudag, loksins þegar það kom smá gat í haustlægðirnar sem voru búnar að vera margar og ansi djúpar og loksins var líka hægt að sigla í Landeyjarhöfn. Við fengum frábært haustveður og sá völlur og umhverfið eru náttúrulega algjörlega stórkostleg. Það var aldrei planað að klára þetta þar en fyrst þetta þróaðist þannig þá hefði ég ekki viljað hafa það öðruvísi. Þegar við stóðum á 18. teig sagði ég við hann – jæja, þetta er hola númer 765 og það sem síðar kom í ljós var að fáninn á stönginni á 18. flötinni var íslenski fáninn og varð fyrir vikið nokkuð sérstakt að klára þetta þar.

Hvaða hvatningu viltu að lokum senda öðrum kylfingum?
Ætli það sé ekki bara að hvetja fólk til þess að vera duglegt að heimsækja aðra golfvelli út um allt land. Það opnuðust að minnsta kosti nýir heimar í þessu hjá mér og þá hlýtur það að gerast hjá öðrum líka. Við erum svakalega rík af einstökum og skemmtilegum golfvöllum og allir hafa þeir sinn sjarma, sín kennileiti og sína sögu – því ekki að prófa að upplifa það.



























