Haraldur Franklín Magnús lauk keppni í Abu Dhabi Challenge á HotelPlanner Tour eftir fyrstu tvo keppnisdagana. Haraldur var einu höggi frá því að komast í gegnum niðurskurðinn í þessu síðasta móti sínu á tímabilinu.
Leikið er á Al Ain Equestrian, Shooting & Golf Club í Sameinuðu arabísku furstadæmunum en mótið er síðasta mótið áður en lokasprettur HotelPlanner Tour hefst. Að mótinu loknu fá 68 efstu kylfingarnir á stigalistanum þátttökurétt í næstu tveimur mótum í Kína.
Haraldur lék fyrsta hringinn á 71 höggi, einu höggi yfir pari. Skorkortið var litríkt, en Haraldur fékk fjóra fugla og fimm skolla.
Haraldur lék annan hringinn á tveimur höggum undir pari og vann sig nær niðurskurðarlínunni en vantaði eitt högg upp á að tryggja sér sæti um helgina.
Haraldur hafði fyrir mótið leikið 17 mót á HotelPlanner Tour á tímabilinu og komist í gegnum niðurskurðinn í átta þeirra. Besti árangur hans kom á German Challenge í júlí þar sem hann endaði jafn í 25. sæti á níu höggum undir pari.



