GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Auglýsing

Framkvæmdir við umfangsmikla stækkun golfskála Golfklúbbsins Keilis á Hvaleyrarvelli eru að hefjast. Fyrsta skóflustungan var tekin við hátíðlega athöfn miðvikudaginn 30. september og í kjölfarið var undirritaður verksamningur vegna framkvæmdanna.

Vel var mætt á Hvaleyrarvöll þegar fyrsti áfanginn að stórbættri aðstöðu Golfklúbbsins Keilis var formlega markaður.

Fyrstu skóflustunguna tóku Ólafur Þór Ágústsson, framkvæmdastjóri Keilis, Guðmundur Örn Óskarsson, formaður klúbbsins, og Sveinn Sigurbergsson.

Undirbúningur framkvæmda hefur þegar verið sýnilegur á Hvaleyrinni. Ræsisskúrinn sem áður stóð neðan við golfskálann hefur verið færður nær fyrstu braut vallarins og gert er ráð fyrir að nýta hluta af jarðveginum í að endurmóta landslagið á milli 15. og 18. holu.

Að skóflustungunni lokinni færði hópurinn sig inn í golfskálann þar sem verksamningur vegna framkvæmdanna var undirritaður. Fulltrúi Loftorku skrifaði undir samninginn fyrir hönd verktakans ásamt Ólafi Þór Ágústssyni, framkvæmdastjóra Keilis, og Guðmundi Erni Óskarssyni, formanni klúbbsins.

Árni Rúnar Þorvaldsson, bæjarfulltrúi í Hafnarfirði, ávarpaði gesti við athöfnina og óskaði Golfklúbbnum Keili til hamingju með þennan mikilvæga áfanga. Að formlegri dagskrá lokinni var boðið upp á kaffi og kökur og var mikil ánægja meðal viðstaddra með að framkvæmdir væru nú að komast af stað.

Nýr golfskáli á köku

Um er að ræða umfangsmikla uppbyggingu sem hefur verið í undirbúningi um nokkurt skeið. Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti fyrr á árinu framkvæmdasamning vegna stækkunar golfskálans og var þá gert ráð fyrir að framkvæmdir gætu hafist haustið 2026. Áætlað hefur verið að verkefnið taki um tvö ár.

Núverandi golfskáli Keilis var tekinn í notkun haustið 1992 og var á sínum tíma miðað við að hann gæti þjónað um 750 félagsmönnum. Félagsmönnum hefur fjölgað gríðarlega síðan þá og eru þeir nú um 2.200. Þörfin fyrir stærra og hentugra húsnæði hefur því aukist verulega.

Með stækkuninni verður skipulagi og nýtingu hússins breytt töluvert. Golfverslun og önnur golftengd þjónusta mun færast á neðri hæð en efri hæðin verður í auknum mæli nýtt undir veitingarekstur og félagsstarf. Þá er fyrirhuguð ný geymslubygging fyrir golfsett sunnan við skálann og útisvæði við húsið verður einnig stækkað.

Vel var mætt til athafnarinnar og ríkti mikil eftirvænting meðal viðstaddra eftir þeirri breyttu og stórbættu aðstöðu sem mun rísa á svæðinu á næstu misserum.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ