GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Haraldur hitti José María Olazábal í Portúgal
Auglýsing

Haraldur Franklín Magnús lauk keppni jafn í 33. sæti á Open de Portugal mótinu, sem fram fór á PGA Aroeira 1 vellinum í Lissabon í Portúgal dagana 17.-20. september. Mótið var hluti af HotelPlanner Tour mótaröðinni, sem er sú næststerkasta í Evrópu.

Haraldur lék hringina fjóra samtals á þrettán höggum undir pari. Hann hóf mótið af krafti og lék fyrsta hringinn á 66 höggum, fimm höggum undir pari, þar sem hann fékk fimm fugla og tapaði engu höggi.

Á öðrum hring lék Haraldur á 70 höggum, einu undir pari, og komst örugglega í gegnum niðurskurðinn. Hann bætti síðan við hring upp á 67 högg á laugardeginum og fór inn í lokahringinn á tíu höggum undir pari.

Haraldur lék lokahringinn á 68 höggum, þremur undir pari. Hann fékk þrjá fugla og tvo skolla auk þess sem hann fékk örn á sautjándu holu. Fugl á lokaholunni skemmdi ekki fyrir og lokaniðurstaðan því þrettán högg undir par.

Hringir Haralds

Nick Carlson, kylfingur GM, lék einnig alla fjóra hringina í Portúgal og lauk leik á fjórtán höggum undir pari, einu höggi á undan Haraldi. Nick lék hringina á 67, 66, 69 og 68 höggum og endaði jafn í 26. sæti.

Árangurinn í Portúgal skilaði Haraldi 14,4 stigum á stigalista HotelPlanner Tour og færði hann upp um tólf sæti. Hann er nú í 148. sæti listans með 77,6 stig.

Haraldur hefur leikið sautján mót á HotelPlanner Tour á tímabilinu og komist í gegnum niðurskurðinn í átta þeirra. Besti árangur hans í sumar kom á German Challenge í júlí, þar sem hann endaði jafn í 25. sæti á níu höggum undir pari.

Frammistaðan í Portúgal var því næstbesti árangur Haralds á mótaröðinni í sumar og jafnframt hans lægsta heildarskor miðað við par á tímabilinu. Flottur árangur hjá Haraldi, sem er einnig skráður í Abu Dhabi Challenge mótið sem hefst þann 30. september.

Hér má sjá úrslit Open de Portugal | Hér má sjá stigalista HotelPlanner Tour

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ