Lokamót Unglingamótaraðarinnar og Golf 14 fara fram helgina 5.-6. september. Keppt verður á Korpúlfsstaðavelli hjá Golfklúbbi Reykjavíkur og á Urriðavelli og Ljúflingi hjá Golfklúbbnum Oddi.
Alls eru 263 keppendur skráðir til leiks í mótunum þremur. Hægt verður að fylgjast með stöðu og úrslitum í GolfBox alla helgina.
N1 Unglingamót 15-18 ára
N1 Unglingamótið er sjöunda og síðasta mót ársins á Unglingamótaröð GSÍ. Alls eru 84 kylfingar skráðir til leiks á Korpúlfsstaðavelli.
Leiknar verða 54 holur á lykkjunum Sjórinn og Áin. Á laugardeginum verða leiknar 36 holur og verður ræst út í fyrri hringinn klukkan 8:00. Önnur umferð dagsins hefst klukkan 14:00.
Að tveimur umferðum loknum verður keppendum fækkað um 30 prósent. Þau 70 prósent kylfinga sem eru á besta skorinu í hvorum flokki komast áfram í lokaumferðina á sunnudeginum. Þá verður ræst út frá klukkan 8:00.
Rástímar, staða og úrslit í N1 Unglingamótinu
Golf 14 – 66°Norður mótið á Urriðavelli
Á Urriðavelli keppa 124 kylfingar í stúlkna- og drengjaflokkum 12 ára og yngri og 14 ára og yngri.
Leiknar verða 36 holur í höggleik án forgjafar, 18 holur hvorn keppnisdag. Fyrstu keppendur hefja leik klukkan 8:00 á laugardagsmorgun og síðasti ráshópur fer út klukkan 14:36.
Rástímar, staða og úrslit á Urriðavelli
Golf 14 – 66°Norður mótið á Ljúfling
Á Ljúflingi eru 55 kylfingar skráðir til leiks. Keppt verður í stúlkna- og drengjaflokkum 10 ára og yngri, 12 ára og yngri og 14 ára og yngri.
Keppendur leika níu holur hvorn dag, samtals 18 holur. Leikið verður höggleiksafbrigði án forgjafar þar sem hámarksskor á hverri holu er tíu högg. Fyrsti ráshópur fer af stað klukkan 9:00 á laugardeginum og sá síðasti klukkan 11:51.





