50+ karlalandslið Íslands er áfram í efsta sæti Evrópumóts landsliða í 2. deild eftir frábæra spilamennsku á öðrum keppnisdegi mótsins í Slóvakíu.
Ísland er samtals á 450 höggum, tólf yfir pari, og hefur 14 högga forystu á Portúgal fyrir lokahringinn.
Sigurbjörn Þorgeirsson átti besta hring íslenska liðsins á miðvikudag. Hann lék á 70 höggum, þremur undir pari, og er kominn í efsta sæti einstaklingskeppninnar á einu höggi yfir pari samtals.
Frans Páll Sigurðsson lék annan hringinn á pari vallar, 73 höggum, og er í þriðja sæti einstaklingskeppninnar á fimm höggum yfir pari. Jón Snorri Halldórsson lék á 75 höggum, tveimur yfir pari, og er jafn í fjórða sæti á sex höggum yfir pari samtals.
Þessi þrjú skor töldu fyrir lið Íslands í gær. Siggeir Vilhjálmsson lék á 76 höggum, þremur yfir pari, og er í 12. sæti einstaklingskeppninnar á tíu höggum yfir pari.
Ísland hóf daginn með eins höggs forystu á Slóvakíu en jók forskotið verulega. Portúgal er komið upp í annað sætið á 464 höggum og Lúxemborg er í þriðja sæti á 468 höggum.
Lokahringurinn fer fram í dag. Tvö efstu liðin tryggja sér sæti í efstu deild Evrópumóts 50+ karlalandsliða á næsta ári og Ísland er því í frábærri stöðu fyrir síðustu 18 holurnar.
Hægt er að fylgjast með stöðu og úrslitum mótsins í GolfBox.






