50+ kvennalandslið Íslands er í 16. sæti eftir fyrsta keppnisdag Evrópumóts landsliða, sem fer fram á BlackSeaRama Golf Resort í Búlgaríu.
Íslenska liðið lék fyrsta höggleikshringinn á samtals 411 höggum, eða 51 höggi yfir pari. Sex kylfingar skipa hvert lið og fimm bestu skorin telja á hvorum höggleikshringnum.
Helga Þorvaldsdóttir, Steinunn Sæmundsdóttir og Þórdís Geirsdóttir léku allar á 81 höggi, níu yfir pari, og eru jafnar í 68. sæti einstaklingskeppninnar.
Ragnheiður Sigurðardóttir lék á 83 höggum, ellefu yfir pari, og Sigríður Kristinsdóttir á 85 höggum, þrettán yfir pari.
Lilja Guðríður Karlsdóttir lék á 86 höggum, fjórtán yfir pari.
Frakkland er í efsta sæti liðakeppninnar eftir fyrsta hring á 365 höggum, fimm yfir pari. Svíþjóð er í öðru sæti á 372 höggum og Holland í því þriðja á 378 höggum.
Seinni höggleikshringurinn verður leikinn í dag. Að honum loknum verður liðunum skipt í tvo riðla fyrir holukeppnina, sem hefst á fimmtudag. Átta efstu liðin leika í A-riðli um Evrópumeistaratitilinn en liðin í sætum 9-16 fara í B-riðil.
Hægt er að fylgjast með stöðu og úrslitum mótsins í GolfBox.






