GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

f.v. Sigurbjörn Þorgeirsson, Jón Snorri Halldórsson, Siggeir Vilhjálmsson, Frans Páll Sigurðsson
Auglýsing

50+ karlalandslið Íslands fór frábærlega af stað í 2. deild á Evrópumóti landsliða, sem hófst á Sedin Golf Resort í Slóvakíu í dag. Ísland er í efsta sæti eftir fyrsta keppnishringinn, einu höggi á undan heimamönnum.

Íslenska liðið lék samanlagt á 232 höggum, eða 13 höggum yfir pari. Þrjú bestu skorin af fjórum telja á hverjum keppnisdegi.

Sigurbjörn Þorgeirsson og Jón Snorri Halldórsson léku báðir á 77 höggum, fjórum yfir pari, og eru jafnir í fjórða sæti einstaklingskeppninnar. Frans Páll Sigurðsson kom inn á 78 höggum, fimm yfir pari, og er jafn í níunda sæti. Þessi þrjú skor töldu hjá íslenska liðinu.

Siggeir Vilhjálmsson lék á 80 höggum, sjö yfir pari, og er jafn í 17. sæti.

Ísland er einu höggi á undan Slóvakíu, sem lék á 233 höggum. Portúgal er í þriðja sæti á 236 höggum og Lúxemborg í því fjórða á 237 höggum.

Mótið er leikið yfir 54 holur og því eru tveir hringir eftir. Tvö efstu liðin tryggja sér sæti í efstu deild Evrópumótsins á næsta ári.

Hægt er að fylgjast með stöðu og úrslitum mótsins í GolfBox.

Völlurinn

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ