Emil Darri Birgisson úr Golfklúbbi Mosfellsbæjar er Íslandsmeistari unglinga í höggleik í flokki 13-14 ára drengja. Emil Darri lék hringina þrjá á samtals 217 höggum, einu höggi yfir pari Þorláksvallar, og sigraði með tveggja högga mun.
Íslandsmót unglinga í höggleik fór fram dagana 20.-22. ágúst og var leikið á tveimur völlum. Kylfingar á aldrinum 15-18 ára léku á Hvaleyrarvelli hjá Golfklúbbnum Keili en kylfingar 14 ára og yngri á Þorláksvelli hjá Golfklúbbi Þorlákshafnar. Keppt var í átta aldursflokkum og leikinn höggleikur án forgjafar. Í flokki 13-14 ára voru leiknar 54 holur, 18 holur á hverjum keppnisdegi.
Emil Darri hóf mótið af miklum krafti og lék fyrsta hringinn á 69 höggum, þremur höggum undir pari. Á hringnum fékk hann meðal annars tvo erni og tvo fugla.
Hann fylgdi því eftir með 73 höggum á öðrum hring og fór inn í lokadaginn á tveimur höggum undir pari. Emil Darri lék lokahringinn á 75 höggum og tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn. Á hringjunum þremur fékk hann tvo erni og tíu fugla.
Jón Ómar Sveinsson úr Golfklúbbnum Keili hafnaði í öðru sæti á 219 höggum, þremur yfir pari. Ásgeir Páll Baldursson úr Golfklúbbi Mosfellsbæjar varð þriðji á 225 höggum ásamt Kristófer Áka Aðalsteinssyni úr Golfklúbbi Akureyrar.
Smelltu hér til að sjá öll úrslit í flokki 13–14 ára drengja






