Íslandsmót golfklúbba 2026 í 1. deild karla 50 ára og eldri fór fram hjá Golfklúbbi Öndverðarness dagana 20.-22. ágúst. Átta lið tóku þátt í mótinu.
Golfklúbburinn Esja varð Íslandsmeistari eftir 3.5-1.5 sigur gegn Golfklúbbnum Setbergi í úrslitaleiknum.
Esja var eina taplausa lið mótsins. Sveitin vann tvo leiki og gerði eitt jafntefli í B-riðli áður en hún lagði Golfklúbb Suðurnesja, 3-2, í undanúrslitum.
Í úrslitaleiknum unnu Guðlaugur Rafnsson og Rögnvaldur Ólafsson fjórmenningsleikinn gegn Tryggva Valtý Traustasyni og Helga Birki Þórissyni, 3/2. Helgi Anton Eiríksson tryggði Esju einnig stig gegn Frans Páli Sigurðssyni og Kristinn G. Bjarnason vann Ólaf Hrein Jóhannesson, 7/6.
Siggeir Vilhjálmsson og Guðjón K. Þórisson skildu jafnir en Júlíus Hallgrímsson vann eina heila stig Setbergsmanna með sigri gegn Árna Páli Hanssyni.
Golfklúbbur Suðurnesja varð í þriðja sæti eftir 3-2 sigur gegn ríkjandi Íslandsmeisturum Golfklúbbs Reykjavíkur.


Lokastaðan í 1. deild karla 50+
- Golfklúbburinn Esja
- Golfklúbburinn Setberg
- Golfklúbbur Suðurnesja
- Golfklúbbur Reykjavíkur
- Golfklúbbur Akureyrar
- Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar
- Golfklúbburinn Leynir
- Golfklúbbur Fjallabyggðar
*Golfklúbbur Fjallabyggðar fellur í 2. deild.
Smelltu hér fyrir stöðu, leiki og öll úrslit úr 1. deild karla 50+.





