GSÍ fjölskyldan
Auglýsing

Tveir íslenskir golfvellir eru ofarlega á lista Golf World yfir þá velli sem búa yfir mestum „X-Factor“. Golfvöllurinn í Brautarholti er í 16. sæti listans og Vestmannaeyjavöllur í 23. sæti.

Listinn, sem ber heitið Top 100 X-Factor Courses 2026, var birtur í nýjustu útgáfu breska golftímaritsins Today’s Golfer. Þar eru valdir 100 golfvellir sem skera sig úr fyrir stórbrotið umhverfi, sögu, stemningu og upplifun kylfinga.

Alþjóðlegur hópur reyndra golfferðalanga, ljósmyndara, blaðamanna og sérfræðinga kom að valinu. Af völlunum 100 voru 91 valinn fyrst og fremst vegna einstaks umhverfis, en níu vegna sterkrar tengingar við stórmót og sögulega viðburði.

Brautarholt er í 16. sæti, á undan heimsþekktum völlum á borð við Loch Lomond, Pebble Beach, Bandon Dunes, Royal Portrush, Muirfield og TPC Sawgrass. Vestmannaeyjavöllur er í 23. sæti og er einnig ofar en allir þessir vellir.

Augusta National er efstur á listanum, Cypress Point er í öðru sæti og Lofoten Links í Noregi í því þriðja. Gamli völlurinn í St Andrews er í áttunda sæti.

Ísland hefur vakið aukna athygli erlendis á undanförnum árum og erlendum kylfingum sem sækja landið til að spila golf hefur fjölgað ár frá ári. Það sem af er þessu sumri nemur fjölgunin um 16% miðað við sama tímabil í fyrra.

Hér má sjá listann í heild sinni

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ