GSÍ fjölskyldan
Auglýsing

Íslandsmót golfklúbba 2026 í 4. deild karla fór fram hjá Golfklúbbnum Dalbúa dagana 14.-16. ágúst.

Alls tóku átta klúbbar þátt:

  • Golfklúbburinn Dalbúi
  • Golfklúbbur Fljótsdalshéraðs
  • Golfklúbburinn Geysir
  • Golfklúbburinn Jökull Ólafsvík
  • Golfklúbburinn Mostri
  • Golfklúbbur Norðfjarðar
  • Golfklúbbur Vatnsleysustrandar
  • Golfklúbbur Þorlákshafnar

Golfklúbburinn Geysir stóð uppi sem sigurvegari eftir 2-1 sigur gegn heimamönnum í Golfklúbbnum Dalbúa í úrslitaleiknum. Geysir tryggði sér þar með sæti í 3. deild karla að ári.

Seven men stand side by side on a golf course, each wearing medals, arms around shoulders, under a blue sky.
Sveit Dalbúa

Þetta var í annað sinn sem liðin mættust í mótinu. Dalbúi vann fyrri viðureignina 2-1 í riðlakeppninni.

Í undanúrslitunum hafði Geysir betur gegn Golfklúbbi Vatnsleysustrandar, 2-1, en Dalbúi vann Golfklúbbinn Mostra með sama mun.

Golfklúbbur Vatnsleysustrandar endaði í þriðja sæti eftir 2-1 sigur gegn Mostra í leiknum um bronsið. Golfklúbburinn Jökull Ólafsvík hafnaði í áttunda sæti og fellur í 5. deild.

Five men stand together on a golf course, each wearing medals around their necks and smiling with arms around each other in a sunny, grassy landscape.
Sveit Vatnsleysustrandar

Smelltu hér fyrir úrslit allra leikja í 4. deild karla.

Lokastaðan í 4. deild karla 2026

  1. Golfklúbburinn Geysir
  2. Golfklúbburinn Dalbúi
  3. Golfklúbbur Vatnsleysustrandar
  4. Golfklúbburinn Mostri
  5. Golfklúbbur Fljótsdalshéraðs
  6. Golfklúbbur Norðfjarðar
  7. Golfklúbbur Þorlákshafnar
  8. Golfklúbburinn Jökull Ólafsvík


Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ