Óliver Elí Björnsson hefur verið valinn í lið Evrópu á Jacques Léglise Trophy, einu stærsta liðamóti heims fyrir kylfinga 18 ára og yngri. Óliver var valinn í liðið í kjölfar sigurs hans á Opna breska áhugamannamóti pilta um helgina.

Jacques Léglise Trophy fer fram dagana 21.-22. ágúst á The Island Golf Club á Írlandi. Þar leika níu af bestu kylfingum 18 ára og yngri frá Bretlandi og Írlandi við úrvalslið meginlands Evrópu.
Mótið er árlegt og hefur lengi verið einn af stærstu viðburðum ársins í unglingagolfi í Evrópu. Fjölmargir kylfingar sem síðar hafa komist í fremstu röð atvinnumanna hafa tekið þátt í mótinu, þar á meðal Sergio García og Luke Donald.
Óliver verður annar íslenski kylfingurinn til að leika í mótinu, en Gísli Sveinbergsson gerði það fyrstur árið 2015.
Mótið á The Island Golf Club hefst aðeins nokkrum dögum eftir sigur Ólivers. Þar fær hann tækifæri til að fylgja eftir sögulegum árangri sínum og keppa með sterkustu unglingum Evrópu.




