GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Auglýsing

Íslandsmótið í golfi 2026 fer fram á Korpúlfsstaðavelli Golfklúbbs Reykjavíkur dagana 6.-9. ágúst.

Alls eru 132 kylfingar skráðir til leiks, 92 í karlaflokki og 40 í kvennaflokki. Á meðal keppenda eru fremstu kylfingar landsins, atvinnukylfingar og tíu fyrrverandi Íslandsmeistarar í golfi.

Smelltu hér til að skoða rástíma og stöðu mótsins:

Leikinn verður 72 holu höggleikur á fjórum keppnisdögum. Eftir fyrstu 36 holurnar verður keppendahópurinn skorinn niður fyrir tvo síðustu keppnisdagana.

Sýnt verður beint frá síðustu þremur keppnisdögum mótsins á RÚV. Aldrei hefur verið sýnt jafn lengi frá Íslandsmótinu og verður mikið lagt í útsendinguna.

Útsendingartímar:

  • Föstudagur 7. ágúst kl. 15:30-18:30
  • Laugardagur 8. ágúst kl. 15:00-17:45
  • Sunnudagur 9. ágúst frá kl. 14:30 til mótsloka

Þetta verður í 29. sinn sem sýnt er beint frá Íslandsmótinu í golfi í sjónvarpi, en fyrsta beina útsendingin var frá Hólmsvelli í Leiru árið 1998.

Við hvetjum alla til að mæta á Korpúlfsstaðavöll og fylgjast með okkar fremstu kylfingum keppa um Íslandsmeistaratitlana. Aðgangur á mótið er ókeypis.

Á yfirlitsmynd mótsins má sjá staðsetningu bílastæða, salerna og veitingatjalds auk allra hola Korpúlfsstaðavallar.

Map-style poster of Íslandsmótið í golfi with numbered locations and facility icons across a coastal golf course venue. Energy-blue header reads VELKOMINÍ Íslandsmót í golfi á Korpúlfsstaðavelli.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ