GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Auglýsing

Undankeppni Íslandsmótsins í golfi fór fram á Korpúlfsstaðavelli fimmtudaginn 30. júlí. Keppt var um tíu síðustu sætin í karlaflokki Íslandsmótsins, sem fer fram dagana 6.-9. ágúst.

Gunnar Smári Þorsteinsson úr Golfklúbbi Reykjavíkur lék best allra í undankeppninni. Hann lauk leik á 71 höggi, eða pari vallarins. Gunnar Smári lék stöðugt golf, fékk einn fugl, einn skolla og paraði 16 holur.

Jónas Guðmarsson, einnig úr GR, varð annar á 73 höggum, tveimur yfir pari. Fannar Ingi Steingrímsson úr Golfklúbbi Hveragerðis og Maron Björgvinsson úr Golfklúbbi Akureyrar léku báðir á 74 höggum, þremur yfir pari.

Mikil spenna var í baráttunni um tíunda og síðasta sætið. Fimm kylfingar luku leik á 77 höggum, sex yfir pari, og þurfti því að grípa til bráðabana. Guðmundur Freyr Sigurðsson úr Golfklúbbi Suðurnesja hafði betur í bráðabananum og tryggði sér síðasta lausa sætið á Íslandsmótinu.

Þeir sem komust áfram eru:

  1. Gunnar Smári Þorsteinsson, Golfklúbbur Reykjavíkur
  2. Jónas Guðmarsson, Golfklúbbur Reykjavíkur
  3. Fannar Ingi Steingrímsson, Golfklúbbur Hveragerðis
  4. Maron Björgvinsson, Golfklúbbur Akureyrar
  5. Gunnar Þórður Jónasson, Golfklúbbur Reykjavíkur
  6. Birkir Þór Baldursson, Golfklúbburinn Leynir
  7. Óli Björn Bjarkason, Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar
  8. Kristinn Sölvi Sigurgeirsson, Golfklúbbur Selfoss
  9. Arnar Freyr Viðarsson, Golfklúbbur Akureyrar
  10. Guðmundur Freyr Sigurðsson, Golfklúbbur Suðurnesja

Alls voru 33 kylfingar skráðir til leiks í undankeppnina, sem var haldin í fjórða sinn. Hér má sjá öll úrslit undankeppninnar.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ