Tveimur keppnisdögum er lokið á European Young Masters-mótinu sem fram fer á Parador de El Saler-vellinum við Valencia á Spáni. Fjórir íslenskir kylfingar taka þátt í mótinu: Halldór Jóhannsson (GK), Elva María Jónsdóttir (GK), Elísabet Þóra Ólafsdóttir (NK) og Máni Freyr Vigfússon (GK).
Elva María hefur leikið hringina tvo á 77 og 73 höggum. Hún er samtals á sex höggum yfir pari og jöfn í 22. sæti í stúlknaflokki. Elva lék annan hringinn á einu höggi yfir pari og færði sig upp um níu sæti á stöðutöflunni.
Elísabet Þóra Ólafsdóttir hefur leikið báða hringina á 85 höggum. Hún er á 26 höggum yfir pari samtals og í 51. sæti.
Í piltaflokki er Halldór Jóhannsson jafn í 44. sæti á 13 höggum yfir pari. Hann lék fyrsta hringinn á 79 höggum og þann síðari á 78 höggum.
Máni Freyr Vigfússon bætti sig um þrjú högg á milli daga. Hann lék fyrsta hringinn á 83 höggum og annan hringinn á 80 höggum. Máni er á 19 höggum yfir pari og jafn í 53. sæti.
Ísland í 26. sæti liðakeppninnar
Ísland er í 26. sæti í liðakeppni mótsins á 38 höggum yfir pari. Þrjú bestu skor hverrar þjóðar á hverjum hring telja til úrslita.
Samanlagt skor Íslands á fyrsta hring var 239 högg. Átta högga bæting var á milli daga, en íslenska liðið skilaði inn skori upp á 231 högg í dag og fór upp um eitt sæti.
Spánn leiðir liðakeppnina á 13 höggum undir pari og er með sjö högga forskot á Frakkland. Þýskaland er í þriðja sæti á þremur höggum undir pari, einu höggi á undan Englandi.




