GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Auglýsing

Öðrum keppnisdegi Lexus bikars GKG lauk í dag á Leirdalsvelli. Sigurður Bjarki Blumenstein tók forystuna í karlaflokki eftir frábæran hring og Karen Lind Stefánsdóttir hélt efsta sætinu í kvennaflokki. Hring dagsins átti Þóra Sigríður Sveinsdóttir, sem setti nýtt vallarmet.

Sigurður Bjarki efstur fyrir lokahringinn

Töluverðar breytingar urðu á stöðunni í karlaflokki á öðrum hring. Sigurður Bjarki Blumenstein, GR, lék sig upp í efsta sætið og er samtals á átta höggum undir pari. Sigurður lék hring dagsins á 64 höggum, sjö undir pari, sem er besti hringur mótsins til þessa.

Daníel Ísak Steinarsson, GK, hélt öðru sætinu eftir annan hring í röð upp á 68 högg. Daníel er á sex höggum undir pari eftir hringina tvo.

Kristófer Orri Þórðarson, GKG, sem leiddi eftir fyrsta hring, er nú jafn Jóhanni Frank Halldórssyni í þriðja sæti, en þeir eru báðir á fjórum höggum undir pari.

Böðvar Bragi fór holu í höggi

Böðvar Bragi Pálsson, GR, átti högg dagsins þegar hann fór holu í höggi á 9. holu Leirdalsvallar. Drauma­höggið hjálpaði honum að færa sig upp stöðutöfluna og inn í toppbaráttuna fyrir lokahringinn, en Böðvar er jafn í fimmta sæti á þremur höggum undir pari.

Þóra Sigríður setti nýtt vallarmet

Karen Lind Stefánsdóttir, GKG, hélt forystu sinni í kvennaflokki. Heimakonan er á þremur höggum yfir pari eftir tvo hringi og er með fjögurra högga forskot fyrir lokahringinn.

Þóra Sigríður Sveinsdóttir átti þó besta hring dagsins. Hún lék Leirdalsvöll á 68 höggum og setti með því nýtt vallarmet af keppnisteigum kvenna (52). Þóra fékk fimm fugla og tvo skolla á hringnum og lék á þremur höggum undir pari.

Vallarmetið skilaði Þóru mikilli hækkun upp stöðutöfluna. Hún deilir nú öðru sætinu með Fjólu Margréti Viðarsdóttur, en þær eru báðar á sjö höggum yfir pari.

Perla Sól Sigurbrandsdóttir er höggi á eftir þeim í fjórða sæti. Guðrún Birna Snæþórsdóttir er í fimmta sæti á tíu höggum yfir pari og Katrín Embla Hlynsdóttir fylgir þar á eftir á tólf höggum yfir pari.

Lokahringur mótsins fer fram á Leirdalsvelli á morgun. Stutt er á milli kylfinga og útlit fyrir spennandi baráttu um sigurinn.

Stöðu, rástíma og úrslit má finna hér.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ