Samkvæmt nýjustu tölum hefur skráðum kylfingum fjölgað um 4.000 á milli ára. Fjöldi kylfinga í golfklúbbum er kominn vel yfir 33.000 sem þýðir um 14% fjölgun samanborið við sama tíma í fyrra. Sumarið er rétt hálfnað og því miklar líkur á að enn eigi kylfingar eftir að bætast í golfhreyfinguna.
Samkvæmt könnunum sem hafa verið gerðar má gera ráð fyrir að nálægt 60.000 Íslendingar spili golf. Því er varla fjarri lagi að tala um golf sem eina vinsælustu íþrótt landsins.
Golfklúbbur Þorlákshafnar þrefaldast í fjölda meðlima milli ára
Golfklúbbar rétt fyrir utan höfuðborgarsvæðið, eða á Stórhöfuðborgarsvæðinu hafa vaxið gífurlega hvað varðar fjölda meðlima þetta sumarið. Sem dæmi má nefna að fjöldi meðlima í Golfklúbbi Þorlákshafnar hefur þrefaldast á milli ára og svipaða sögu má segja með Golfklúbb Grindavíkur.
Eflaust eru margar ástæður þess að meðlimum í jaðri höfuðborgarsvæðisins hefur fjölgað svo mjög. Þar mætti nefna fjölbreyttari möguleikar á félagsgjaldi m.a. ódýrari fjaraðild og aukið aðgengi að rástímum.

Nóg pláss fyrir nýja meðlimi
Þó að ótakmörkuð félagsaðild hjá sumum golfklúbbum sé nú aðeins möguleg í gegnum biðlista þá getur fjöldinn allur af golfklúbbum þess utan vel bætt við sig kylfingum. Nokkrir golfklúbbar bjóða upp á par-3 velli með sérstakri félagsaðild sem er vinsæl á meðal byrjenda. Hér má sjá frétt um hvað félagsaðild að golfklúbbi kostar.
Þessi jákvæða þróun á íþróttinni hefur orðið til þess að flest bæjar- og sveitarfélög um land allt eru nú að vinna markvisst með sínum íþróttafélögum að nýjum möguleikum þ.e. að fjölga golfholum og/eða skipuleggja önnur æfingasvæði.
Áfram mikil aukning í fjölda erlenda kylfinga
Það er ekki eingöngu að meðlimum í golfklúbbum fjölgi heldur fjölgar með hverju ári þeim erlendum kylfingum sem heimsækja okkur og leika golf á völlum um allt land.
Hér er ólíkt því sem gerist víða annars staðar leikið í mikilli nánd við einstaka náttúru um allt land, hraun, ár, hveri og eldfjöll svo eitthvað sé nefnt að ótöldu miðnæturgolfinu sem er vinsælt meðal erlendra gesta.
Þetta árið er heildaraukning í spili erlendra gesta það sem af er sumri um 15% miðað við síðasta ár og mesti heildarfjöldi (til loka júní) frá upphafi.
Erlendir kyfingar leika alls vel yfir 10.000 hringi árlega á völlum um allt land.




