Unglingamótaröðin heimsótti Jaðarsvöll á Akureyri um helgina, þar sem ungir og efnilegir kylfingar léku við frábærar aðstæður. Tæplega 80 kylfingar mættu til leiks í mótið og var mikið líf á svæðinu.
Leikinn var 54 holu höggleikur án forgjafar í flokki 15-18 ára drengja og stúlkna. Einnig voru veitt verðlaun fyrir bestan árangur í flokki 15-16 ára og 17-18 ára.
Í stúlknaflokki stóð Embla Hrönn Hallsdóttir, GKG, uppi sem sigurvegari, en hún lék hringina þrjá á 77, 69 og 74 höggum og lauk leik á sjö höggum yfir pari. Embla leiddi með fjórum höggum fyrir lokahringinn og bætti við forskotið með flottum lokahring.
Bryndís Eva Ágústsdóttir, GA, varð önnur á þrettán höggum yfir pari og Ásdís Rafnar Steingrímsdóttir, GR, varð þriðja á fjórtán höggum yfir pari.
Ásdís fékk flest pör allra kylfinga mótsins, alls 35 á hringjunum þremur. Bryndís kom næst á eftir með 33 pör. Embla sótti högg sín á par 3 og par 5 holum Jaðarsvallar, en hún var með besta meðalskor flokksins á þeim báðum.
Kristín María Valsdóttir, GK, lék á besta skori 15-16 ára stúlkna, en hún lauk leik á 30 höggum yfir pari eftir hringi upp á 80, 81 og 82 högg.


Kristján Karl Guðjónsson, GM, vann piltaflokkinn á einu höggi undir pari. Hann léki hringi sína á 68, 75 og 69 höggum og leiddi frá fyrsta hring. Þetta er þriðji sigur Kristjáns í fjórum mótum, en hann hefur leikið öll fjögur mótin undir pari
Gunnar Þór Heimisson og Arnar Daði Svavarsson, báðir GKG, deildu öðru sætinu á sex höggum yfir pari.
Akureyringarnir Ágúst Már Þorvaldsson og Egill Örn Jónsson voru jafnir í fyrsta sæti 15-16 ára pilta á tíu höggum yfir pari. Þeir léku bráðabana um sigurinn þar sem Ágúst hafði betur.






