GSÍ fjölskyldan
Auglýsing

Íslandsmótið í golfi 2026 fer fram á Korpúlfsstaðavelli hjá Golfklúbbi Reykjavíkur dagana 6.-9. ágúst. Mótið er sjöunda og síðasta mót tímabilsins á GSÍ mótaröðinni og munu fremstu kylfingar landsins berjast um Íslandsmeistaratitlana í karla- og kvennaflokki.

Íslandsmótið snýr aftur á Korpúlfsstaðavöll eftir þrettán ára fjarveru, en síðast var leikið um Íslandsmeistaratitlana þar árið 2013. Mikill undirbúningur hefur staðið yfir hjá Golfklúbbi Reykjavíkur og stefnir allt í glæsilegt mót, bæði fyrir keppendur og áhorfendur.

Skráning er hafin í mótið, en hægt er að nálgast skráningu og allar helstu upplýsingar hér.

Öllu tjaldað til á Korpunni

Undirbúningur Golfklúbbs Reykjavíkur hófst löngu áður en keppnistímabilið 2026 fór af stað.

Framkvæmdir á Korpúlfsstaðavelli og vinna sumarsins hefur verið unnin með það markmið í huga að völlurinn verði í sínu besta ástandi þegar keppendur hefja leik að morgni fimmtudagsins 6. ágúst.

Unnið hefur verið að því að bæta aðgengi og aðstöðu áhorfenda. Þar má nefna undirbúning bílastæða og gönguleiða, auk þess sem gert er ráð fyrir viðbótarsalernum, tjöldum og áhorfendasvæðum. Líkt og á fyrri Íslandsmótum mun stór hópur sjálfboðaliða gegna lykilhlutverki við framkvæmd mótsins.

Aerial map of a golf resort with numbered markers, facility icons (WC, walking), and event branding in Icelandic.
Yfirlitsmynd fyrir Korpúlfsstaðasvæðið

Umgjörð Íslandsmótsins hefur orðið sífellt umfangsmeiri á undanförnum árum. Mótið á Hvaleyrarvelli árið 2025 vakti mikla athygli og horfðu tæplega 40 þúsund manns á beinar útsendingar RÚV, sem var 36% aukning frá árinu 2024.

Nýir teigar og spennandi ellefta hola

Unnið hefur verið að því undanfarin ár að fjölga teigum á vellinum og lengja völlinn. Sex nýir teigar verða notaðir í mótinu, en stærsta breytingin verður á elleftu holunni, þar sem leikið verður af nýjum teig yfir ána. Holan verður því töluvert erfiðari en áður, en hún reyndist léttasta holan í Korpubikarnum fyrr í sumar af gömlu teigunum. Töluvert fleiri kylfingar léku hana undir pari heldur en á pari eða verr, og var meðalskorið 4.45.

Panoramic view of a golf course with sand bunkers in the foreground, green fairways, trees, and a distant town under a cloudy sky.
11 holan

Karginn verður látinn vaxa meira á þeim svæðum þar sem lengstu og bestu kylfingar landsins lenda upphafshöggum sínum. Með því verður völlurinn þrengri á mikilvægum svæðum og ónákvæm högg geta reynst dýrkeypt.

Síðast keppt á Korpúlfsstöðum árið 2013

Íslandsmótið fór síðast fram á Korpúlfsstaðavelli árið 2013. Birgir Leifur Hafþórsson, GKG, varð þá Íslandsmeistari í karlaflokki og Sunna Víðisdóttir, GR, fagnaði sigri í kvennaflokki.

Ríkjandi Íslandsmeistarar eru Dagbjartur Sigurbrandsson, GR, og Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK. Dagbjartur vann sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil á Hvaleyrarvelli í fyrra en Guðrún Brá varð Íslandsmeistari í fjórða sinn eftir spennandi umspil.

Allt stefnir í glæsilegt mót á Korpúlfsstöðum í ágúst. Völlurinn mun reyna á alla þætti leiksins og metnaður er lagður í að umgjörðin verði eins góð og kostur er fyrir keppendur, sjálfboðaliða og áhorfendur.

Sjáumst þar.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ