Gunnlaugur Árni Sveinsson var í nótt valinn íþróttamaður ársins í karlaflokki hjá Louisiana State University háskólanum, LSU. Hann hlaut Male Athlete of the Year-verðlaunin á árlegum MIKEY-verðlaunum skólans eftir framúrskarandi annað tímabil með golfliði LSU.
MIKEY-verðlaunin eru veitt af íþróttadeild LSU og Tiger Athletic Foundation til að heiðra íþróttafólk skólans fyrir árangur í keppni, námi og samfélagsstarfi. Gunnlaugur Árni var einn sex íþróttamanna sem tilnefndir voru sem íþróttamaður ársins í karlaflokki, en aðrir tilnefndir komu úr amerískum fótbolta, körfubolta, sundi, tennis og frjálsum íþróttum. Verðlaunin eru því veitt fyrir árangur þvert á allar íþróttagreinar skólans en ekki aðeins innan golfliðsins.
Frábært annað tímabil í Bandaríkjunum
Gunnlaugur Árni lék 31 keppnishring fyrir LSU á tímabilinu og var meðalskor hans 70.39 högg. Það er sjöunda lægsta meðalskor sem leikmaður LSU hefur náð á einu tímabili. Hann lék 20 hringi á pari eða betur og þar af 15 hringi undir 70 höggum.
Hápunktur tímabilsins kom á Fallen Oak Invitational mótinu í október þar sem Gunnlaugur Árni fagnaði sínum öðrum einstaklingssigri í bandaríska háskólagolfinu. Hann lék hringina þrjá á 66, 70 og 67 höggum og lauk leik á 13 höggum undir pari. Hann varð einnig í öðru sæti á Jackson T. Stephens Cup, þar sem hann lék á fimm höggum undir pari.
Gunnlaugur var tvisvar valinn kylfingur vikunnar í Southeastern Conference, SEC, á haustönninni. Hann var einnig valinn í úrvalslið suðaustursvæðis NCAA og var orðaður við bæði Haskins-verðlaunin og Ben Hogan-verðlaunin, sem eru meðal stærstu einstaklingsverðlauna í bandarísku háskólagolfinu.
Á NCAA-meistaramótinu lék Gunnlaugur Árni hringina fjóra á 77, 74, 69 og 68 höggum. Hann lék síðustu 36 holurnar á sjö höggum undir pari og endaði jafn í 32. sæti mótsins. LSU hafnaði í 12. sæti eftir að hafa unnið sig upp um fimmtán sæti með stórkostlegum þriðja hring.
Eftir fyrstu tvö tímabil sín hjá LSU er Gunnlaugur Árni með meðalskor upp á 70.31 högg á 67 keppnishringjum. Það er lægsta meðalskor leikmanns í sögu golfliðs LSU.
Skrifaði söguna á Shinnecock Hills
Afrek Gunnlaugs Árna ná einnig út fyrir háskólagolfið. Í júní tryggði hann sér sæti á U.S. Open eftir að hafa leikið í lokaúrtökumóti í Ohio. Hann lék hringina tvo á 67 og 68 höggum, eða níu höggum undir pari, og tryggði sæti sitt í fjögurra manna bráðabana.
Með því varð hann fyrsti íslenski karlkylfingurinn til að keppa á U.S. Open.
Gunnlaugur Árni var jafnframt valinn, annað árið í röð, í alþjóðlegt úrvalslið Arnold Palmer Cup. Mótið er árleg liðakeppni fyrir fremstu háskólakylfinga heims í anda Ryder- og Solheim Cup.

Í hópi stórra nafna hjá LSU
Viðurkenningin er sérstaklega stór í ljósi þeirrar íþróttahefðar sem ríkir hjá LSU. Skólinn er einn þekktasti íþróttaháskóli Bandaríkjanna og hefur í gegnum tíðina alið af sér heimsþekkta íþróttamenn á borð við Shaquille O’Neal, Joe Burrow, Sylvia Fowles og Mondo Duplantis. Fyrrum kylfingar LSU eru meðal annars risamótsmeistarinn David Toms og Ryder Cup-kylfingurinn Sam Burns.
Alls tóku fjórtán núverandi eða fyrrverandi íþróttamenn LSU þátt á Ólympíuleikunum í París árið 2024 og unnu þeir samtals átta verðlaun, þar af þrjú gullverðlaun.
Með sigrinum bætist Gunnlaugur Árni jafnframt á glæsilegan lista þeirra sem hafa verið valdir íþróttamenn ársins hjá LSU. Á meðal fyrri verðlaunahafa eru heimsmethafinn Mondo Duplantis, Heisman-verðlaunahafinn Jayden Daniels, hafnaboltastjarnan Alex Bregman og NCAA-meistarinn í golfi, John Peterson.
Frábært viðurkenning fyrir Gunnlaug, óskum honum til hamingju.




