GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Auglýsing

„Það sem ekki er bannað í golfi er leyft“ er oft sagt þegar fjallað er um golfreglunar.

Í fyrstu reglu golfreglnanna segir: Leiktu völlinn eins og þú kemur að honum og boltanum eins og hann liggur.

Í áttundu reglu segir: Þegar bolti leikmannsins stöðvast verður leikmaðurinn að öllu jöfnu að sætta sig við þær aðstæður sem hafa áhrif á höggið og má ekki bæta þær áður en boltanum er leikið.
Í reglunum er síðan að finna nokkrar undanþágur frá þessum meginreglum við aðstæður þar sem leikmanni er ekki ætlað að glíma við. Engin þeirra tilgreinir þó að færa megi boltann ef leikmaður er ósáttur við legu boltans, enda er það bannað samkvæmt fyrstu reglu.

Heimilt er að þó leyfa bætta lega ef vallarskilyrði eru sérstaklega slæm vegna óvenjulegra aðstæðna. Þetta er heimilt að gera með því að nýta sérstaka fyrirmynd að staðarreglu um bætta legu á snöggslegnu svæði. Ástæður nýtingar slíkrar reglu eru snjór, miklar rigningar, þýða að vori eða miklir þurkar. Hins vegar gildir þessi fyrirmynd að staðarreglu eingöngu um snöggslegið svæði á almenna svæðinu. Engin heimild er til staðar til að nýta slíka staðarreglu á öðrum svæðum vallarins, svo sem á flöt (sjá fyrirmynd staðarreglu E-3 í kafla 8 í verklagi nefnda, sem eru hlutar golfreglnanna).

Þetta er ekki nýjung, þetta hefur verið svona í 10 ár hið minnsta í opinberu golfreglunum. Í inngangi fyrirmyndar að staðarreglu E-3 segir:


„Þegar slíkar aðstæður eru víða á vellinum, getur nefndin valið að setja staðarreglu um „bætta legu“ til að tryggja sanngjarnan leik eða til að hlífa sumum eða öllum brautum. Slíkar staðarreglur ætti að taka úr notkun eins fljótt og aðstæður leyfa.“

Í reglunni sjálfri segir m.a:


„Þegar einhver hluti bolta leikmanns snertir almenna svæðið sem slegið er í brautarhæð eða neðar …“
Af þessu sést að ekkert heimilar okkur að setja reglur um bætta legu á öðrum svæðum vallarins, þar með talið á flötum, og eru því golfreglurnar án heimildar þar.

Aðrar reglur er að finna sem leysa ýmsan vanda á flötum, til dæmis færslur á flöt frá óeðlilegu ástandi flatar, svo sem tímabundnu vatni eða skemmdum sem nefndin telur vera óeðlilegt ástand (athugið að hér eru færslur leyfðar á flöt).

Þrátt fyrir þessar lausnir, þá eru þær ástæður sem leikmenn vilja oft tilgreina sem ástæður fyrir hreyfingum á flötum oftast taldar hlutar af leiknum og því sem kylfingar eiga að glíma við. Oft er kvartað undan grastoppum, sliti, grasleysi, ójöfnum og sliti.

Golfreglurnar fjalla sérstalega um þessa hluti í reglu 13 um flatir, en þar er tekið fram að gera megi við skemmdir á flöt:

„Skemmd á flötinni“ merkir hvers konar skemmd eftir einhvern einstakling (þar á meðal leikmanninn) eða utanaðkomandi áhrif, svo sem:
• Boltaför, skemmdir af skóm (til dæmis gaddaför) og rispur eða ójöfnur vegna útbúnaðar eða flaggstangar. Gamlir holutappar, torfutappar, samskeyti skorins torfs og rispur eða ójöfnur vegna verkfæra eða véla. Rásir gerðar af dýrum eða hófför, og sokknir hlutir (til dæmis steinar, akörn eða tí) og ójöfnur vegna þeirra.“

Það sem oftast kallar á bætta legu á flöt eru hlutir sem ekki má gera við og eru hlutir þess sem kylfingum er ætlað að glíma við samkvæmt reglunum og því bætt lega á skjön við reglurnar. Í reglunni er þetta flest talið upp, en þar segir:


Hins vegar fela „skemmdir á flötinni“ ekki í sér neinar skemmdir eða aðstæður sem orsakast af:
• Venjulegum vinnubrögðum við almennt viðhald flatarinnar (svo sem götunarholur og rásir eftir lóðréttan skurð), vökvun, rigningu eða öðrum náttúruöflum, náttúrulegum ójöfnum á yfirborði (svo sem illgresi, ógrónum eða sýktum svæðum eða svæðum með ójafnri sprettu), eða venjulegu sliti á holunni.“

Nánar má lesa um þessi mál í þýddum golfreglum í appi R&A Rules of golf 2023 (App Store eða Play Store) eða á vefsvæði R&A www.randa.org

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ