Mikilvæg og stór skref hafa verið tekin í uppbyggingu golfíþróttarinnar í Hafnarfirði að undanförnu. Golfklúbburinn Keilir vinnur nú að stækkun golfskála félagsins, samhliða því sem undirbúningur að nýju golfsvæði í Snókalöndum heldur áfram.
Í sumarkveðju formanns Keilis kemur fram að bæjarstjórn Hafnarfjarðar hafi samþykkt framkvæmdasamning vegna stækkunar golfskálans. Þar með er stigið stórt skref í átt að bættri aðstöðu fyrir félagsmenn, gesti og starfsemi klúbbsins á Hvaleyrinni.
Áætlað er að stækkunin taki um tvö ár í framkvæmd, og gerir samningurinn þeim kleift að hefja framkvæmdir strax í haust.


Á sama tíma vinnur Golfklúbburinn Keilir, í samstarfi við Golfklúbbinn Setberg, að öðru stóru verkefni í Hafnarfirði: nýju golfsvæði í Snókalöndum. Framkvæmdahópur um nýjan golfvöll hefur verið að störfum, en þar sitja m.a. Ólafur Þór Ágústsson, framkvæmdastjóri Keilis, Högni Friðþjófsson, formaður Golfklúbbsins Setbers, og Guðmundur Árni Stefánsson, núverandi varaformaður Samfylkingarinnar.
Gert er ráð fyrir uppbyggingu á þremur golfvöllum, tveimur 18 holu völlum og einum 12 holu velli, auk öflugs æfingasvæðis, innanhúsaðstöðu og annarra nauðsynlegra innviða. Horft er til þess að verkefnið verði byggt upp í áföngum, en að heildarmyndin liggi skýrt fyrir strax á hönnunarstigi.

Áætlanir gera ráð fyrir að allt að 370 einstaklingar geti verið á svæðinu á sama tíma og að um 1.350 kylfingar geti farið í gegnum vellina á hefðbundnum degi.
Markmiðið er að golfvellirnir verði hluti af stóru og fjölbreyttu útivistarsvæði þar sem almenningur geti notið hreyfingar og náttúru allt árið um kring. Í áformunum er gert ráð fyrir göngu- og skokkleiðum, hjólreiðastígum og annarri útivist sem falli vel að landslagi svæðisins og geri það aðgengilegt breiðum hópi notenda.
Verkefnið markar stórt og mikilvægt skref fyrir golfíþróttina á svæðinu. Nýtt golfsvæði í Snókalöndum styrkir stöðu golfsins til framtíðar og skapar framúrskarandi aðstöðu fyrir bæði kylfinga og almenning.



